Apple Keynote með OmniOutliner

iWork 08 er nýlega komið út eins og alþjóð veit. Þetta er engin smá uppfærsla frá iWork 06.

Ég er einn af þeim sem hef beðið eftir Num­bers í áraraðir, en sterkur orðró­mur hefur gengið í mörg ár að Apple ætti til grunn að svona töflureikni ein­hvers staðar í kistunni. Ég er búinn að yfir­færa nokkur svona skjöl sem ég er alltaf að nota, úr Excel yfir í Num­bers og verð að segja að mér finnst breytin­gin verulega til bat­naðar. Mér líður miklu betur í augunum.

Pages hef ég ekki notað af neinu viti, hvorki þessa nýju útgáfu né þá eldri en það fer að líða að því. Viðskip­tavinir nota Word og ef maður vill opna skjölin þeirra í Pages og senda þeim Word skjöl sem búin hafa verið til í Pages, verður maður að vinna eftir skotheldu verk­ferli sem ekki klikkar. Maður ein­faldlega nen­nir ekki að hlusta á væl um ósamhæfni og þess hát­tar meðan Word á makka vin­nur alger­lega með pc útgá­funni. Jafn­vel þótt ekki sé búið að uppfæra Word upp í Intel útgáfu makka meginn.

Samt sem áður skrifa ég aldrei stakt orð í Word. TextE­dit er frábær kos­tur og ég nota það for­rit miklu frekar fyrir texta sem ég þarf að skrifa, ef það er þá ekki tölvupós­tur eða blogg.

Keynote er uppáhalds for­ri­tið mitt í pakkanum. Ég hef notað Keynote af og til frá því fyrsta útgá­fan kom. Reyn­dar, vegna vinnu, nota ég Pow­er­Point miklu meira. Pow­er­Point finnst mér vera nánast óþolandi for­rit þótt það þjóni sínum til­gangi. Órökrétt uppröðun á aðgerðum í valseðlum er það sem fer einna mest í tau­gar­nar á mér.

En ég ætlaði nú eigin­lega að segja frá lítið þekk­tri dásemd sem ég nota nánast alfarið þegar ég er að búa til skuggamyn­dasýningu. Þetta er sam­spil Keynote og for­rits sem heitir OmniOut­lin­er­Pro.

OmniOut­liner fyl­gir öllum nýjum mökkum og er í Appli­ca­tions möp­punni. Ég nota hins vegar Pro útgá­funa sem býður upp á nokkuð fleiri kosti. Ég hef ekki enn hitt neinn sem hefur gert meira en að opna þetta for­rit. Lokað því svo aftur eftir að hafa komist að því það þetta er ekki leikjaforrit.

For­rit sem köl­luð eru out­liner eru eins konar ritvinnslu­for­rit sem hægt er að nýta á fjöl­marga vegu. Grunnhug­takið er að maður skri­far eina línu eftir aðra — eins konar lista. Með hnap­paaðgerð eða músinni getur maður gert undirlínu sem er inndregin og þar undir fleiri línur á því plani. Hver lína, hvort sem hún er aðal­lína eða undirlína getur haldið áfram að gera undirlínur og þan­nig myn­dar svona listi eins konar tré.

Við þetta bætist sá eigin­leiki að hægt er að taka í hverja línu og færa hana upp fyrir eða niður; breyta aðal­línu í undirlínu og öfugt. Allar undirlínur færast með aðal­línu hver sem hún er færð.

Þetta hjó­mar eflaust alveg óskil­jan­lega. En málið er hins vegar að þetta er alveg hreint frábært fyrir alla hugmyn­davinnu. Hugmynd með undirhugmyn­dum hanga saman og hægt er að fletta þes­sum köflum sun­dur og saman þan­nig að maður sjái bara aðal­línurnar eða allt tréð eins og það leg­gur sig.

Þegar maður er til dæmis að undirbúa fyrir­lestur er ekki óeðlilegt að nota svona out­liner. Fyrst lætur maður hugan reika og skrifa niður allt sem manni det­tur í hug varðandi hvaða efni þarf að tala um. Í svoleiðis þankaþeytu koma hugmyn­dirnar ekki alltaf, eða aldrei í nákvæm­lega rét­tri tímaröð, svo það er ágætt að geta umstaflað þeim eins og um hluti væri að ræða. Ekkert kopípeist.

omnifontlab
Svo er farið að skoða þes­sar hugmyn­dir og raða og þá dúkka upp alls kyns undirhugmyn­dir og jafn­vel undir-undirhugmyndir við hvern lið. Þær eru svo skri­faðar hver undir aðra og hægt að umstafla þeim síðar innbyrðis. Þið verið eigin­lega bara að prófa þetta sjálf til þess að sjá hvað ég er að fara. Ekki svo auðvelt að lýsa þessu.
Svona er dæmigert ferli við að búa til skyg­gnusýningu, slideshow. Aðal­línurnar eru tit­ill­inn á hverri skyg­gnu og undirlínurnar eins og tex­tinn á þeim.

Þá kemur snilldin: OmniOut­liner býður upp á fjöl­marga kosti í Export. Þar á meðal að vista sem Apple Keynote skjöl. Visti maður skjalið þan­nig er það opnan­legt beint inn í Keynote og aðeins þarf að velja það þema sem maður vill nota og í restina getur maður bætt svo við myn­defni ef það á við.

Hérna er lítið dæmi: Fyrri myn­din sýnir brot af OmniOut­liner skjali sem ég notaði þegar ég var undirbúa fyrir­lestur í Lis­taháskólanum fyrir skemm­stu. Eftir að ég var orðinn sát­tur með tex­tana fór ég í Export… og vis­taði sem Apple Keynote. Opnaði skjalið inn í Keynote og fjórtán skyg­gunur hop­puðu upp. Valdi síðan allar skyg­gnurnar og valdi það þema sem ég hafði í huga. Þemað heitir Palo Alto sem ég keypti hjá KeynotePro.com

Kos­turinn við að vinna þetta svona er ekki síst sá að maður getur ein­beitt sér að inni­haldi skyg­gnanna fyrst á mjög fljótle­gan og meðfæri­le­gan hátt áður en maður slep­pir sér í útlitsmálin.

keynoteslide

Share