Viðskip­tavinir í hnotskurn

kunnar2Vef­síða ein sem heitir freelanceswitch.com hefur tekið saman yfir­lit yfir 12 tegundir viðskip­tavina byggt á hegðun þeirra.

Það er alltaf gott að geta flokkað viðskip­tavini svona gróflega og eins að hafa í huga að manns eigin viðbrögð séu í sam­ræmi við hvernig þeir eru, það er að segja ef maður vill halda í þá.Mismunandi man­ngerðir og hegðun kallar á jafn­mörg og mis­mu­nandi viðbrögð frá okkur svo sam­starfið geti verið með sem bestu móti.

Í stað þess að pirra sig endalaust á erfiðleikum í sam­starfi er tímanum mun betur varið í að læra á viðskip­tavininn og öllum líður betur á endanum.

Kíkið á þen­nan lista og gáið hvort þið þekkið ekki ein­hverja sem passa inn í greininguna. Svolítið skondið. Athugið jafn­framt hvort megi kannski bæta sam­skiptin með því að líta í eigin barm og gefa aðeins meira af sér í samstarfið.

Share