Flottasta letrið 2006 (?)

typographica.org vefsíðan ágæta hefur verið í talsverðri lægð að undanförnu.
Eflaust meðal annars af því að aðstandendurnir eru í fullri vinnu við annað. Fyrir nokkrum dögum birtist árleg grein á síðunni um það sem þeir telja flottasta letrið árið 2006.
Ástæðan fyrir því hve þessi grein birtist seint á árinu er að hluta til vegna þess að árið 2006 voru gefin út um eða yfir 1800 letur og ekkert smá verk að vinnsa út úr þeim fjölda.
En nú er þetta loksins komið og alltaf fróðlegt að skoða svona samantektir þótt þær séu byggðar á persónulegu mati þess sem skrifar þær.

