AI : Hnattrænir litir – Global Color
Feykilegar breytingar og nýjungar í litameðhöndlun er einkenni á nýjustu uppfærslu á Illustrator CS3, eða Illustrator 13 eins og hann heitir bak við tjöldin. Ég vona að ég geti smám saman tínt til eitthvað gagnlegt um þetta og stungið hér inn.
En áður en að því kemur ætla ég að taka fyrir smá mál sem hefur verið lengi í Illustrator, en tiltölulega fáir nýta sér. Kannski af því þeir vita ekki um það. Þetta er það sem heitir Global Color sem er í litapalettunni (Swatches).
Litapalettan er afar gagnlegt tól. Hægt er að velja liti sem eru í henni, breyta þeim að þörfum, búa til nýja liti til að geyma og þar fram eftir götunum eins og allir þekkja.
Það sem ég hef verið að reka mig á er að margir þekkja ekki muninn á táknmyndunum sem notaðar eru í litapalettunni. Kíkið á neðstu þrjá litina í henni — grænu litina. Þessir litir eru allir eins en hafa misjafna eiginleika.

Sá fyrsti er einfaldlega litur sem ég bjó til með því að draga lit sem mér leist vel á að nota út úr litablöndunartækinu. Ég get notað hann aftur og aftur í því sem ég er að fara að teikna. Ef ég vel hann kemur hann fram í litablöndunartækinu og ég get breytt honum að vild til þess að nota en hann breytist ekki í litapalettunni sjálfri. Nýja litinn verð ég að draga inn í litapalettuna ef ég ætla að geyma hann líka.
Ef ég vil hins vegar breyta lit sem þegar er kominn í palettuna verð ég að tvísmella á hann og þá birtist Swatch Options gluggi til þess að framkvæma breytingarnar.

Möguleikarnir eru all nokkrir í þessum stilliglugga.
- Swatch Name. Nafn á litnum.
- Color Type. Val milli þess að hafa litinn Process eða Sérlit (Spotlit).
- Global, hnattrænt
Sjá neðar. - Color Mode. RGB eða CMYK
- Preview, forskoðun. Sjá neðar.
Sleðarnir eru svo til þess að breyta litnum. Ég minni á að ef Shift hnappnum er haldið niðri meðan sleðarnir eru hreyfðir færast hinir í hlutfalli við upprunalegu blönduna og þannig hægt að tóna litinn til og frá.
Þegar litur er Global merkist hann í litapalettunni með hvítu horni að neðan. Global litur þýðir hins vegar að allt sem litað hefur verið með Global lit tekur á sig þær breytingar sem við kunnum að gera á honum í Swatch Options glugganum.
Setjum sem svo að við séum búin að lita tugi flata og lína með lit sem er ekki Global. Þá er meiri háttar mál að raka saman öllu til þess að gera litabreytingu. Ef liturinn er hins vegar Global er það ekkert mál og allar tilraunir með litinn verða miklu þægilegri.
Að auki er hægt að haka við Preview og þá sér maður á skjánum allar breytingar sem verða í verkinu. Þægilegt?
Við þetta er að bæta að allir litir sem skilgreindir eru sem sérlitir eða spotlitir (Pantone) fá á sig svarta doppu (spot) í litapalettunni og eru í eðli sínu Global.
Það er afleit villa sem oft kemur upp, að fólk notar sérliti, til dæmis Pantone lit fyrirtækis sem er verið að vinna fyrir í litablöndur og jafnvel lætur litinn blandast yfir í annan lit sem er kannski venjulegur CMYK litur. Í venjulegu fjögurra lita CMYK prentverki eiga alls ekki að vera sérlitir til staðar því hver af þeim kallar eftir sér filmu fyrir sig. Þegar farið er svo að leita að sérlitnum í skjalinu vill leitin oft verða ansi erfið.
Til þess að koma í veg fyrir svona dellu er upplagt að búa sér til Global lit sem er CMYK litablanda af fyrirtækislitnum, svo ég noti það dæmi áfram. Þá hefur maður eiginleika Pantone-litarins og getur sveiflað honum til og frá í Swatch Options glugganum án þess að eiga á hættu að hann heimti að verða prentaður með sérlit.

En hvað ef maður er með fullt af litaflötum og línum í einhverjum lit og vill breyta honum í Global til þess að nýta sér kosti þess?
Það er til dæmis hægt að gera svona:
- Búðu til Global lit sem er alveg eins og sá sem þú vilt skipta yfir í.
- Veldu nú einn litaflöt af litnum sem þú vilt breyta.
- Notar í valblaðinu: Select > Same > Fill Color (Fill & Stroke) (Stroke Color) til þess að velja alla fleti og línur með gamla litnum. Þú gætir þurft að gera þetta í áföngum, fyrst fleti svo línur og svo framvegis.
- Smellir nú á nýja Global litinn og liturinn skiptist út.


Og ef menn vilja fara alla leið, þá fá auglýsingateiknarar og prentarar sér svona:
http://www.w2products.com/product_image.php?id=147