2007 Ítalía : Napolí og Caravaggio

Hótelið í Napólí heitir Hotel Car­avag­gio. Þetta er alveg príðishó­tel á okkar mælik­varða en við erum svo sem ekkert kresin. Stá­tar fjórum stjör­num. Ég skil nú ekki alveg þessa stjör­nugjöf á hótelum, en mig min­nir að fjórða stjar­nan sé fyrir míníbarinn. Ég vildi nú frekar hafa tóman kæliskáp til afnota.

Morgun­verðurinn er í þes­sum ítal­ska anda og hel­sti munurinn hér er að kaf­fið er lagað í stórri kaf­fi­húsavél frammi við barinn og er betra en gen­gur og gerist á hótelum á Ítalíu. Ég hef aldrei skilið af hverju er ekki lagað almen­ni­legt kaffi á hótelum á Ítalíu í þessu mikla kaffilandi.

piazzanapoliEftir morgun­matinn fórum við að spássera um þen­nan gamla bor­garhluta. Reyn­dar var stef­nan tekin í suð-vestur hlu­tann þar sem við vis­sum af aðal­torgi bæjarins, Piazza del Plebisc­ito. Þetta torg er gríðar­lega stórt og það með byg­gin­gunni sem sést á myn­dinni min­nir ónei­tan­lega á Péturskirkju­torgið í Róm. Við marseruðum þarna um nágren­nið og skoðuðum. Talsvert bar á fólki sem var ýmist að koma úr eða fara í kirkju til að gifta sig enda er 07.07.07 dagurinn í dag. Auðvelt að muna það í framtíðinni.

napoliverslun
Við rákumst á nokkar áhugaverðar búðir til að kíkja á og flotta yfir­byg­gða ver­slu­n­armiðstöð, ekki ósvipuð og er í Mílanó. Við borðuðum svo þarna rétt við torgið á stað sem heitir Rossopo­madoro. Alveg dýrindis fiskmáltíð. Heill smá­fiskur afar ljó­tur en fínn á bragðið. Ég ris­saði í rælni mynd af fiskinum á servíettu og þegar við vorum að ganga frá staðnum sá ég að starfs­fólkið hljóp með servíet­tuna sín á milli að sýna hvort öðru – og hlægja.

veggjakrot

Búðirnar voru í þann mund að loka síðdeg­is­lokun­ina þegar við röl­tum af stað og við tókum aðra leið til baka og gáfum okkur góðan tíma. Ég smellti nokkrum myn­dum af glæsi­legu veg­g­jakroti, bara sem sýnishorni og eins mynd af dæmigerðri bílh­lið í Napólí.

bilrispur

Um kvöldið gengum við svo götuna okkar innan um Napólíbúana og borðuðum svo á sama stað og kvöldið áður. Ágætis matur og ég fékk mér meðal annars aðra pizzu. Í þetta skip­tið með hráskinku og moz­zarel­laosti. Ekki síðri en sú sem ég fékk í gær og ekki spillti fyrir húsvínið sem þeir buðu upp á.

Share