Helvetica 50 ára

Kannski ég labbi út á vídeóleigu einhvern tíma næstu misserin og leigi mér myndina Helvetica á DVD. Þetta gæti verið alveg hugsanlegt, ef vídeóleigan keypti inn myndina — sem er hins vegar frekar ólíklegt.
Það er sem sagt búið að gera heimildarmynd um Helvetica letrið og notkun þess, grafíska hönnun og myndræna skynjun yfirleitt. Viðtöl við menn út bransanum og hvað eina. Helvetica letrið á einmitt fimmtugsafmæli um þessar mundir og er það að hluta til kveikjan að gerð myndarinnar.
Það er verið að forsýna myndina núna í San Francisco og er uppselt á báðar frumsýningarnar skilst mér. Áður er búið að sýna myndina á kvikmyndahátíðum og er hún búin að hreppa nokkur verðlaun nú þegar.
Fróðleik um myndina má nálgast á heimasíðunni www.helveticafilm.com og YouTube er með „sýnishorn út næstu mynd“. Mundið að hafa Menu á ef þið horfið á sýnishornin.

