ID : Orðskipting án skiptiforrits
Á Maclantic.com var vísað hingað í tengslum við orðskiptiviðbótina InDihyph fyrir Adobe CS3 pakkann. Það er búið að svara að hluta til því sem var verið að spyrja um, en það má sem sagt búast við að klárað verði við að uppfæra viðbótina á næstu örfáum vikum. Ekki vitlaust að setja sig á fréttabréfslistann hjá þeim.
Mér skilst að það sé hægt að nota gamla forritið Skipta á texta og setja það inn í InDesign þannig að það virki. Ég hef bara aldrei prófað fara þessa leið. Skipta setur inn tákn á rétta staði, tákn sem er fyrir valbandstrik, Discretional Hyphen. Það er ekki það sama og InDesign notar (^-) og þyrfti því að skipta því út í Find / Change. Eins og ég segi hef ég ekki prófað þetta sjálfur. Þetta ferli þýðir svo að maður þarf í fyrsta lagi að hafa Skipta og í öðru lagi að hafa líka gamla vél sem getur keyrt það.
InDihyph er á hinn bóginn viðbót, Plug-in sem setur ekki inn tákn sem haldast í textanum þegar hann er fluttur út.
Á meðan er skynsamlegast að nota InDesign CS2 fyrir verk með lengri texta. En fyrir styttri texta (teygjanlegt) er alveg hægt að gera þetta svona:
- Settu á Type>Show Invisible Characters
- Settu á Character Panel>[No Language]

- Settu á í Paragraph Panel>Adobe Paragraph Composer

- Settu bendilinn inn þar sem skipta á orðinu
- Sláðu á Shift+Slaufa+ - (orðskiptistrik)
Flestir nota bæði vinstri og hægri hendina við svona orðskiptingar en hægt er að gera Shift+Slaufa+ - eingöngu með hægri hendinni. Hvor aðferðin sem valin er verður til þess að maður þarf alltaf að vera að sleppa hendinni af músinni eða píluhnöppunum ef maður heldur sig við þá. Ekki gott. Það má því einfalda þann lið á þennan hátt:
- Veldu eitt orð og sláðu á Shift+Slaufa+ - einhvers staðar inn í orðið.
- Afritaðu orðið og límdu inn í Find / Change gluggann
- Afritaðu táknin ^- sem þú sérð þarna

- Lokaðu Find / Change glugganum
- Settu bendilinn inn þar sem skipta á orðinu
- Límdu (þumall og vísifingur?)
Með þessu er hægt að hamast með hægri á mús eða pílum og vinstri sér um hitt.
Nú hugsa margir: – Ég er ömurlegur í stafsetningu, lsebilndur og ýmislegt annað hrjáir mig. Þessu er til að svara:
Orðskiptireglur í Íslensku eru mjög einfaldar og má kíkja á þær á vef Eiríks Rögnvaldssonar eða menntamálaráðuneytisins. Sjá þar grein 20.
Auk þess að fara eftir reglunum setjum við inn orðskiptingu alls staðar þar sem það er leyfilegt
- Samsettum orðum og orðum með forskeyti er skipt um samskeytin þar sem orðin renna saman. Ef orðið er samsett úr mörgum orðum eru aðalsamskeytin notuð. Við að orðskipta fyrir prent setjum samt orðskiptitáknið eða valbandstrikið að auki milli allra annara hugsanlegra liða.
Dæmi með aðalorðskiptinu upplýstu: borð^-dúk^-ur, for^-mað^-ur, dýra^-vernd^-un^-ar^-fél^-ag.
- Sama regla gildir um viðskeytt orð, ef viðskeytið er í málvitund manna sjálfstæð heild.
Dæmi með aðalorðskiptinu upplýstu: sann^-leik^-ur, hór^-dóm^-ur, list^-rænn, strák^-ling^-ur.
- Ósamsettum orðum er skipt þannig, að síðari hlutinn hefjist á sérhljóði endingar.
Dæmi með aðalorðskiptinu upplýstu: hundarn^-ir, vænst^-ur, manns^-ins.
Og svo til viðbótar þessi ágæta regla:
- Ekki senda í prentun texta nema hann hafi verið lesinn yfir af prófarkarlesara
Ég nefndi að undan að fínt væri að handgera þetta svona fyrir styttri texta. En eru menn ekki með einhvern sumarvinnumann sem vill feginn gera þetta við löngu textana þar til CS3 InDihyph viðbótin kemur?

