Apple : Á slóðum RSS

RSSlogo
Mar­gir eyða óheyri­legum tíma á net­inu. Ég er þar lík­lega engin undan­tekn­ing en fer þó eftir því hvernig maður skil­greinir óheyri­legt. Aðrir eyða ekki minni tíma í að horfa á sjón­varp og margt af því ekkert sér­lega upp­byg­g­jandi. Raun­veruleikaþæt­tir eða íþrót­tir og ýmis konar afþrey­ing. Ég get alveg verið án þess hát­tar sjón­varpsef­nis — það höfðar ein­faldlega ekki til mín. Ég hef þess vegna engan sérstakan móral þótt ég noti netið talsvert. Inter­netið býður reyn­dar ein­nig upp á tölu­vert magn af þvælu. En á sama hátt er netið haf­sjór af fróðleik eins og risas­tór uppflet­tibók sem gaman og gagn­legt er að guða í.

Smátt og smátt saf­nast upp hjá manni slóðir á vefi sem maður vill gjar­nan fyl­g­jast með reglulega. En það er aldrei svo að hvert einasta inn­legg eigi beint erindi til manns hel­dur er oftast um að ræða að inn komi grein og grein sem maður vill ekki missa af. Ein­nig er tíðni inn­leg­g­janna mishröð og óreglu­leg þar eð mikill hluti þeirra sem skrifa inn efni eru að gera það á eigin kost­nað í frítíma sínum.Það er því mikil tímasóun að vera alltaf að fara inn á hverja einustu síðu sem maður á von á að eit­th­vað spen­nandi birtist ein­hvern tíma. Það verður gjar­nan að eins konar árát­tuhegðun, ekki ólíkt því sem maður sér hjá sumum þeim sem láta tölvupóstinn sinn koma inn í símann. Eða þá eins og maður sér gjar­nan fólk við vinnu stöðugt vera að kíkja af og til allan daginn á mbl.is til þess að gá hvort eit­th­vað hafi gerst.

Í mínu til­felli eru sem sten­dur rúm­lega 220 síður um margvís­leg efni sem ég vil gjar­nan fyl­g­jast með. Mar­gar eru ekkert sér­lega spen­nandi en þó hlý­tur að hafa verið ein­hver ein grein eða málaflokkur á síðunni sem hefur fengið mig til þess að vona að meira komi síðar. Ég gerði ekki mikið annað ef ég færi á allar þes­sar síður daglega bara til að gá hvort ein­hver hafi nú skri­fað eit­th­vað nýtt sem gæti höfðað til mín. Svo grisja ég af og til í þessu safni ef síður hætta að viðhalda áhuga mínum á þeim.

Ef maður vill eyða lág­marks tíma í að fyl­g­jast með svona síðum er tilvalið að nýta sér svokallað RRS sem mar­gir bjóða upp á. RRS er brella sem sýnir manni fyrir­sag­nir greina á vefjum sem maður óskar eftir og í fles­tum til­fel­lum nokkrar fyrstu línurnar úr greininni. Ef eit­th­vað vekur athygli er hægt að smella á fyrirsögn­ina og greinin hop­par upp í vafranum. Það besta er að maður sér á þessu yfir­l­iti allar greinarnar sem maður ætlar ekki að lesa. Þær eru yfir­leitt miklu fleiri en það sem maður vill lesa. Þetta þýðir í raun að maður gerist áskri­fandi að efni vefsins.

Nokkuð er mis­mu­nandi hvað RSS sýnir manni mikið af greinum. Fyrirsögn greinar­in­nar er alltaf og svo nokkrar línur oftast. Í ein­staka til­fel­lum er bara sýnd fyrirsögnin eins og til dæmis hjá mbl.is. Mér finnst það frekar pir­randi að geta ekki séð fyrstu línurnar. Það vel­dur því að ég fer mjög sjal­dan inn á þá síðu eftir frét­tum. Helst ef ein­hver starfs­félagi æpir upp yfir sig vegna ein­hvers sem hann eða hún var að lesa.Síður sem bjóða upp á RSS eru oft merk­tar þan­nig að merki er aftast í URL reit­num. Mis­mu­nandi merki eru notuð. Safari og Opera eru með blátt RSS merki, Fire­fox með byl­gjur úr stan­dard merkinu.

Sá vafri sem valinn er sem aðal­vafri tölvun­nar er líka aðal RRS lesari nema maður breyti því. Segjum sem svo að Safari sé aðal­vafrinn. Kíkjum aðeins á RSS still­ingar­nar í honum. Undir Default RSS Reader getur maður valið að aðal RSS lesarinn sé annar vafri eða þá sérhæft for­rit fyrir RSS eingöngu eins og sést á myn­dinni. Ein­nig er hægt að ákveða hvar haldið er um síðurnar. Forstillt er í Safari að það sé í Book­marks Bar. Þegar maður setur upp nýja tölvu er hægt að sjá að undir bókamerk­inu News er búið að stilla upp svona síðum og sést fjöldi greina sem eru undir hver­jum miðli.

SafariRSS

Til þess að nýta sér RSS til full­nustu er best að koma sér upp sérhæfðum RSS lesara eða aggre­ga­tor eins og það er kallað upp á ensku. Eins og sést á myn­dinni er valið hjá mér að RSS lesarinn sé News­Fire. News­Fire er eitt af þes­sum sérhæfðu for­ri­tum sem lesa RSS tengla. Þegar smellt er á RSS hnapp á vef­síðu eða aftan við URL-ið opnast þetta for­rit og býður upp á áskrift að RSS tengingu síðun­nar og svo stil­lir maður til dæmis hve lengi áskrift varir á hverja grein og eins er þægi­legt að flokka tenglana niður eftir efni. Mér finnst einn af góðu kos­tunum sá að ef ég rekst á mjög áhugaverða síðu get ég látið ná í yfir­lit yfir greinar allt að sex mánuði aftur í tímann – eða þess vegna alveg frá upphafi.Í fljótu bragði koma upp þrjú RSS for­rit í hugann sem ég veit að eru vin­sæl. Fleiri má finna á macupdate.com eða versiontracker.com.

NewsfireNews­Fire er nokkuð vin­sælt og er for­ri­tið sem ég nota sem sten­dur. Kostar 20 dol­lara. Sami maður, David Watan­abe, gerir þetta for­rit og býr til Acqui­si­tion og xTor­rent sem mar­gir þekkja og hina frábæru Safari viðbót Inquisi­tor for Safari (sem virkar líka á Safari 3 beta).

netnewswireNet­NewsWire er líka mjög vin­sælt og býður upp á fjöl­marga möguleika. 30 dol­larar. Ein­nig eru þeir með Lite útgáfu ókeypis.

endoendo er ekki síður skemmti­legt for­rit til þessa brúks og sveig­jan­leg með afbrigðum. 18 dol­larar. For­rit sem ég er að fara að skipta yfir í á næs­tunni. Ég nota annað for­rit frá þes­sum sama aðila til þess að skrifa þes­sar greinar, Ecto og líkar vel og ein­nig er fínn stuðningur við for­ritin. Mac­World gaf þessu for­riti nýlega fjórar og hálfa mús:

endo 1.0.21 is a good choice for feed addicts with a lot of sub­scrip­tions, espe­cially those who are also blog­gers or who down­load lots of media files. I have never used a bet­ter RSS news reader.“

Að lokum: Hvað ef maður er alveg ókun­nur þessu öllu saman, finnur ekkert nógu áhugavert á net­inu og veit yfir höfuð ekkert um hvað þetta snýst allt? Þá væri rey­nandi að skoða til dæmis þessa síðu og sjá hvort er ekki eit­th­vað skemmti­legt sem maður vildi kíkja á og jafn­vel taka áhæt­tuna á að ánet­jast. Það eru til síður um bók­staflega allt. Bútasaumur, tap­pasöf­nun, fram­leiðni, trúar­brögð, lis­tir og hvað sem er. Það er úr milljónum síðna að velja.… og já, endi­lega smella á RSS fyrir font.is

Share