2007 Ítalía : Lecce, San Cal­taldo og Cibal

sancataldo

Dagurinn fór rólega af stað. Sumar­frí eru oft eigin­lega tímalaus en ég veit þó að það er lau­gardagur. Við ákváðum enn að sleppa morgun­mat­num á hótelinu og koma okkur út á strönd. Það er alveg gráup­plagt, nema að því leyti að ég hef eins og vanalega náð að brenna mig í sólinni í gær. Það skip­tir svo sem ekki miklu máli því það er alltaf hægur vin­dur við strön­d­ina svo maður ofhit­nar ekki þótt maður sé í bol. Umhver­fið er einkar fal­l­egt, hví­tur san­dur, smá klet­ta­belti hér og þar, heiður himinn og svo er fal­l­e­gur viti hérna alveg rétt hjá okkur

viti
Það er sama góða verðrið og hitinn kominn í svona 32 gráður. Fínt að hanga smá tíma á ströndinni í San Cataldo og lesa. Þegar við komum til San Cataldo var ég orðinn svan­gur og við ren­ndum okkur á fyrsta veitin­gahúsið sem við sáum. Port Adri­ane heitir hann en reyn­dar sten­dur Cibal á mat­seðlinum.
Það er ekki að spyrja að því, maturinn var frábær, pasta og skel hjá mér í áframhal­dandi rannsókn minni á fyrir­bærinu, risotto með aspas hjá Lindu. Bjór með í þetta skip­tið. Og ekki kostar þetta mikið. Við erum búin að finna út þá for­múlu að ef maður verð­leg­gur vínið sem maður drekkur yfir á íslen­skt veitin­gahúsaverð, þá er maturinn frír. Ekki slæmt.

Um kvöldið geg­num við út að jaðri gamla bæjarins í leit að stað sem við höfðum séð mælt með. Við fun­dum staðinn en veitin­gahúsið hét ekki nafn­inu sem við bjug­gumst við. Fórum samt inn og set­tumst inn í garð sem er inn af staðnum. Staðurinn var alveg eins og í lýsingunni.

bollur
Vertinn tók á móti okkur. Kona á okkar aldri, afskaplega þjónus­tu­lun­duð sem sagði: My Eng­lish is very small. En sam­skiptin gengu vonum fra­mar. Þegar við fengum mat­seðlana urðum við nokkuð hissa. Alveg eins og í hádeginu: Cibal! Og það rif­jaðist upp fyrir mér að þegar við gengum inn stóð Port Adri­ane á litlu ljósask­ilti.
VIð sögðum konunni frá þes­sari tilviljun og hún varð himin­li­fandi yfir þessu. Bar í okkur aukaskammta af öllu sem við báðum um, djúp­steik­tum bol­lum og pizzu. Og hún setti verulega hærra í glösin en hjá öðrum ges­tum. Þetta varð hið mesta gaman.

Share