FreeHand nálgast endalokin
Adobe gaf út fyrir stuttu fréttatilkynningu um það sem FreeHand notendur hafa óttast mest: FreeHand verður ekki uppfært framar.
Ég fékk í hendurnar pdf skrá frá Adobe um þetta en ég veit ekki um slóð á það hjá þeim. Finna má skjalið með því að slá upp:
FreeHand_to_Illustrator_Migration_FAQ.pdf í Google.
Samantekið og lauslega þýtt er innihaldið eitthvað á þessa leið:
Spurning: Hvað hyggst Adobe gera varðandi framtíðarþróun Macromedia© FreeHand©?
Svar: Adobe ætlar ekki að þróa FreeHand frekar og ekki munu koma út uppfærslur fyrir forritið. Adobe mun hins vegar selja FreeHand MX áfram og veita tæknilegan stuðning og halda uppi notendaþjónustu í samræmi við stefnu fyrirtækisins. Við vitum vel af stórum hópi tryggra notenda en hvetjum þá til þess að skipta yfir í Adobe© Illustrator© CS3. Sem tryggum Freehand notendum bjóðast ykkur sérstök kjör á uppfærslu yfir í Illustrator CS3 ásamt ókeypis aðgangi að ýmis konar stuðningsefni sem á að hjálpa ykkur við að taka þetta stökk.
Í skjalinu eru nokkrar slóðir sem vísa á síður þar sem ýmist eru gefin góð ráð við skiptin eða farið yfir kostina við að skipta. Eins má finna ágætis efni þar sem bent er á hvernig þekktar aðgerðir úr FreeHand eru gerðar í Illustrator.
Það stefnir allt í að FreeHand notendur séu að lokast inni með forritið í Tiger gerð af stýrikerfinu og alveg spurning hvað Humac sér lengi þörf fyrir að uppfæra Klemmuspjaldsbreytinnn og Roman hnappaboðið, sem eru forsenda þess að hægt sé að setja texta inn í FreeHand.
Eitt af því sem FreeHand notendur sakna hvað mest er að geta unnið með margar og misstórar síður í forritunu. Illustrator býður ekki upp á það á sama hátt. Í flestum tilfellum væri mun nær að hugsa sér að nota InDesign þegar nota þarf margar síður, til dæmis við bæklingagerð. Enda yfirburða leturmöguleikar í því forriti.
Hér er slóðið á nokkra staði sem fjalla um þessi mál:
Skipt yfir í Illustrator, margar síður
Skipt yfir í Illustrator, ýmsar upplýsadi staðreyndir fyrir FreeHand fólk
Skipt yfir í Illustrator, ýmsar upplýsingar
Ég hvet FreeHand notendur til þess að kíkja á þessar síður og eins á pdf skjalið sem ég benti á hér að ofan.

