Mail : Pós­tur falinn í skyndi

MailStampMeð tilkomu flatskjáa hefur gefist fínt tæk­ifæri til þess að minnka skrif­borð starf­s­manna og jafn­vel setja fleiri starf­s­menn í hvert rými. Þetta þýðir það er erfiðara um vik að skoða í tölvunni það sem annara augu eiga ekki að sjá, t.d. viðkvæma tölvupósta frá bankanum eða kannski lögfræðingi nágrannans.
Sumum kann að finnast þetta ósköp bjá­nalegt en ég veit fyrir víst að það eru alltaf ein­hver­jir sem eru að sjá þes­sar upplýsin­gar í fyrsta skipti.

Ef þú ert með póst opinn og þarft í skyndi að loka honum eru nokkrir möguleikar í stöðunni:
Ef þú lest póst með því að opna hvern póst í sínum eigin glugga:

  • Loka glug­ganum. Sla­ufa + W

Ef þú lest póstinn með því að velja póst fyrir póst (ert með Mail glug­gann tvískip­tan (pós­tarnir í efri hluta og lesa í neðri hluta)):

  • Slökkva á Mail for­rit­inu. Sla­ufa + Q (Mjög dra­matísk og ekki hraðvirkt ef Mail er tékka á pósti akkúrat á þessu augnabliki).
  • Fela Mail for­ri­tið. Sla­ufa + H
  • Skipta yfir í annað for­rit. Sla­ufa + tab
  • Taka tvískiptin­guna af með því að tvís­mella á skilin á milli. Fæst aftur síðar með því að tvís­mella neðst á ram­mann þar sem doppan er.

Tvær sneg­gstu aðferðirnar:

  • Smella á póstinn sem ég er að lesa og halda slaufu niðri um leið. Þá afvelst pós­turinn og sést ekki í glug­ganum lengur.
  • Smella á skjáborðið og halda niðri Option (Alt, val­h­nap­pur) niðri um leið. Virkar þá eins og Sla­ufa + H. (Oscar Bjarna©)
Share