Fuglinn Fönix
Jæja, nú er vefurinn kominn í loftið og ég á bara eftir smá nudd til þess að hefja leik aftur.
Það verður svolítið tómlegt hérna til að byrja með. Allt sem gat farið úrskeiðis gerði það.
Í fyrsta lagi reyndist afritið af sql grunninum sem innihélt alla skrifaða pósta með svörum verulega gallaður og í sannleika sagt alveg ónýtt. Þar fór öryggisafrit eitt.
Öryggisafrit tvö var náttúrulega svæðið sem vefurinn var á áður. Honum var lokað og hent 5. maí. Isnic lokaði á flutning yfir á þann vef 1. maí.
Þá var eftir forritið ecto sem ég nota til þess að skrifa áður en ég sendi inn á vefinn. Það innihélt alla pistlana – þar til ég tengdist nýja svæðinu. Þá vildi hann endilega gera innihald ecto það sama og á vefnum – sem sagt tómt. Þar fór það.
Þarna eru farnir þrír möguleikar á að gera vefinn eins og hann leit út áður en flutningur hófst. Ég á eitthvað af greinum í ecto sem er á fartölvunni minni og gamalt afrit af stilliskjölum hans. Ég set það efni sem ég finn smátt og smátt inn en það er ljóst að ég þarf að endurskrifa slatta.
Þetta er svo sem ekkert voða leiðinlegt. Sumt af því sem virðist alveg glatað verð ég að koma fljótlega inn aftur en margar greinar þola smá endurskoðun með tilliti til Adobe uppfærslu yfir í CS3.
Fuglinn Fönix reis aftur úr öskunni og leið bara bærilega á eftir skilst mér.
Viðbót: Þá er allt komið inn sem ég fann heillegt. Ég þarf að endurskrifa svona fimmtíu greinar. Býst við að ég geri það í bland við nýjar eftir því sem tími vinnst til.
Enn viðbót: Ég fæ upplýsingar um hverjir eru með linka inn á þessar síður. Í gær fór ég á eina af þessum síðum til þess að láta vita af því að linkurinn á Linotype FontExplorerX greinina myndi breytast því ég þyrfti að endurskrifa hana þar eð hún hefði týnst í flutningum. Hollendingur einn sendi mér þá þær upplýsingar sem mig óraði ekki fyrir að greinin væri enn á netinu í Cache á Google. Ég kíkti á þetta og gat náð í greinina og nú er hún komin hér aftur.
Það sem meira er, mér hefur tekist með sömu leið að ná yfir 90% af því efni sem ég taldi glatað að eilífu. Það mun tínast inn smátt og smátt eftir að ég hef farið yfir það og jafnvel lagfært að einhverju leyti.

