AI : ID: Ekki er allt sem sýnist. Overprint

Oft sér maður auglýsin­gar í blöðunum þar sem mynd er í grun­ninn og svar­tur borði eða flö­tur set­tur yfir hluta hen­nar og tex­tinn þar ofan á. Nokkuð algeng lausn til þess að troða tex­tanum inn. Kíkið á þetta ef þið hafið ekki tekið eftir þessu fyrr.

En galli er á gjöf Njarðar. Svarti flö­turinn er oftar en ekki hálfglær. Ég skal ekki ful­lyrða í hvaða til­fel­lum hann átti að vera það og hvenær ekki. En það er klárt mál að oftast er það ekki ætlunin hel­dur yfirsjón eða hrein­lega vanþekking sem vel­dur þessu.

Þan­nig er, að þegar prentað er, prentast litir eins og þeir voru set­tir inn í verkið í for­rit­inu, Illus­tra­tor, InDe­sign eða hvað það er. Segjum að við setjum rauðan flöt fyrst. Teiknum svo bláan flöt þar við hliðina og látum hann ná aðeins yfir á rauða flötinn. Eins og sést í for­rit­inu hylur blái liturinn að hluta rauða flötinn. Þan­nig prentast þetta líka, sama hvaða liti við veljum. Efri litur klip­pir undan sér aðra liti.

Í ónákvæmri pren­tun vel­dur getur þetta valdið því að bil myn­dist milli litanna nema gerðar séu sérstakar ráðstafanir (Trapping).

Undan­tekn­ing er hins vegar 100% svar­tur. Hann klip­pir ekki undan sér, hel­dur leg­gst yfir. Þetta er kallað Over­print í daglegu tali. Prentl­i­tirnir Cyan, Magenta, Yellow og BlacK eru allir hálfglærir svo þeir blan­dist vel til að mynda aðra litir. Í pren­tun klippa þeir hins vegar undan sér eins og áður var lýst – nema svar­tur.

Svar­tur fær að hafa þessa trans­par­ent eigin­leika vegna þess að hann er notaður svo mikið í texta og til þess að við lendum síður í að fá texta með hví­tum bilum allt í kring vegna léle­grar pren­tu­nar. Ekki þarf að gera neitt sérstakt til þess að svar­tur fái þessa hegðun. Það er sjálfge­fið í útkeyrslunni og stórhæt­tulegt að vera að bæta Over­print á svarta litinn. Kem að því neðar.

Svo ég haldi áfram með dæmið sem ég byr­jaði á: Til þess að koma í veg fyrir að svar­tur flö­tur sem fer yfir mynd verði geg­n­sær er besta ráðið að blanda fleiri litum við svarta. Hafa flötinn til dæmis 5% Cyan, 5% Magenta, 100 Black. Við þetta fæst tvennt:

  • Cyan og Magenta sjá um að klippa myn­d­ina burt undan sér
  • Svarti liturinn verður miklu massífari.

Ekki er vit­laust að hliðra til þes­sari blöndu með tilliti til hver­jir eru rík­jandi litir í myn­dinni undir. T.d. ef myn­din er í rauðari kan­ti­num, auka þá Magen­tuna upp í svona 15%.

Í öðrum til­fel­lum vill maður kannski að aðrir litir klippi ekki undan sér, hel­dur blan­dist saman og myndi þriðja lit svo dæmi sé tekið. Síðan for­ritin fóru að geta hönd­lað Trans­parency almen­ni­lega er það algen­gasta leiðin. Trans­parency palet­tan opnuð og þét­tleiki litarins minnkað svo sá neðri skíni í gegn. Gamla leiðin, sem reyn­dar er alveg full­gild enn, er að setja Over­print skipun á efri litinn. Nauðsyn­legt er að kunna aðeins skil á þessu þegar unnið er fyrir prentun.

AI_OverprintPaletteOver­print skipun­ina í Illus­tra­tor má finna í palettu sem heitir Attrib­utes. Hakað er við hvort maður vill Over­print á Fill eða Stroke. Að setja Over­print á Stroke er gjar­nan notað við að minnka líkur á að bil myn­dist milli ólíkra lita þar sem ónákvæmi í pren­tun er lík­leg. Línan, Stoke, flæðir þá yfir á litinn við hliðina en klip­pir ekki neðri litinn undan hel­dur blandast við hann. Það er þetta sem kallað er Trapping.

Attrib­utes palet­tan er gagn­leg ein­nig að því leiti að hún sýnir Over­print á litum sem ættu kannski ekki að vera með Over­print. Dæmi:

Mar­gir kan­nast eflaust við villu sem verður til eftir að skjal úr Free­Hand er vis­tað (Export) yfir í Illus­tra­tor 7.x, svo hægt sé að halda áfram vinnslu á því í Illus­tra­tor. Þegar skjalið er opnað í Illus­tra­tor er allt svart letur með Over­print. Þetta getur maður séð í Attrib­utes palet­tunni. Þetta er ein­föld staðreynd sem verður að hafa í huga ef maður hefur fengið til dæmis sent lógó úr Free­Hand. Illus­tra­tor CS3 getur opnað Free­Hand skjöl beint og gildir það sama um þau skjöl.

AI_OverprintFreeHandMaður hel­dur svo áfram vinnslu. Segjum sem svo að þetta sé auglýs­ing. Breytir til dæmis breytir einu orði í tex­tanum. Næst teik­nar maður kannski kassa og hann verður í sama lit og tex­tinn af því Illus­tra­tor hel­dur alltaf áfram með síðasta lit sem var valinn. Þá gerist þetta sem sést í Attrib­utes: Liturinn tók með sér Over­print skipun­ina og hún helst á kas­sanum þótt lit­num sé breytt. Þetta smi­tast svo út um allt skjalið í einum hlut af öðrum.

Alvar­legast verður þetta svo þegar maður ákveður svo að tex­tinn verði hví­tur ofan á fleti eða mynd. Hvítt Over­print er nefni­lega alveg glært þrátt fyrir að það sjáist á skjánum. Því birtist enginn texti í auglýsin­gunni. Þá vitið þið það.

Þá er komið að einum mik­il­væ­gasta þæt­tinum í þessu öllu. Öll þessi for­rit, Illus­tra­tor, InDe­sign og Acro­bat bjóða upp á svokallað Over­print Pre­view. Með því að hafa Over­print Pre­view alltaf á eða í það minnsta við lokafrá­gang skjala má ein­faldlega sjá hvort svona Over­print mál séu í lagi. Í nýja Illus­tra­tor CS3 er manni boðið að setja Over­print Pre­view á strax og nýtt skjal er búið til. Frábær viðbót.

AI_OverprintDoc

Í tengslum við Over­print Pre­view er líka rétt að kíkja á annað notag­ildi þess fyrir vinnslu í Illus­tra­tor eingöngu. Í Illus­tra­tor eru RGB litir notaðir við að túlka CMYK liti og sér­l­iti, spotl­iti. Þegar Over­print Pre­view er sett á skip­tir Illus­tra­tor yfir í Lab litasviðið til að túlka litina eins og InDe­sign. Við þetta fæst margfalt betri túlkun á litunum, ekki síst sér­l­i­tunum. Hérna er lítið dæmi þar sem ég tók af han­dahófi nokkra Pan­tone liti og sýni þá án Over­print Pre­view að ofan en með því að neðan.

AI_OverprintPantone

Share