Sta­farugl í Out­look í pós­tum frá Mail

MailLogo
Hver­jir hafa ekki fengið að heyra: „Pós­turinn frá þér er í algeru rugli! Ekkert nema ein­hver­jir kín­ver­skir stafir…“

Í ljósi sögun­nar gera fle­stir ráð fyrir það van­damálið sé makka megin. Makkafólkið líka. En svo er ekki. Það er Out­look sem ræður ekki við skeyti með mör­gum stafatöflum og les ein­ungis þá fyrstu sem tilgreind er í hverju skeyti og beitir á restina af skeyt­inu og allur tex­tinn fer í tómt rugl.

Það er engin leið fyrir noten­dur Out­look að leysa úr þessu þan­nig að noten­dur Mail for­ritsins verða að taka málin í sínar hen­dur. Það eru tvær leiðir út úr þessu.

Fyrri leiðin er að fara í

  • Mail > Pref­er­ences.
  • Þaðan í Com­pos­ing hnap­pinn og
  • stilla efsta hnap­pinn á Plain Text

MailPlaintext

Þetta lagar van­damálið sam­stundis. En eftir þetta er ekki hægt að möndla neitt með texta svo sem að fita hann eða skipta um leturg­erð eða neitt. Þegar ég gerði þetta í fyrsta skipti fannst mér það alveg fer­legt en fljótlega van­dist maður þessu og maður spyr sig afhverju maður ætti að vera að skreyta eit­th­vað tex­tann í þes­sari skilaboðaskjóðu.

En nú vill maður samt helst geta notað Rich Text (rtf) finnst möguleikinn er fyrir hendi. Og það er hægt. Með þes­sari ein­földu aðgerð geta allir lagfært þetta hjá sér – líka þeir sem aldrei hafa opnað for­ri­tið Ter­mi­nal. Nú er um að gera að láta ekki hugfallast.

Seinni leiðin:

  • Slökktu á Mail forritinu.
  • Afritaðu þessa set­ningu með gæsalöp­pum og öllu:

defaults write com.apple.mail NSPreferredMailCharset "UTF-8"

  • Opnaðu for­ri­tið Ter­mi­nal sem er í Applications/Utilities/Terminal
  • Límdu set­ninguna þar inn.
  • Sláðu á Enter hnap­pinn eða Return.
  • Skri­faðu svo: logout og sláðu á Enter aftur.
  • Slökktu á Terminal.

MailTichText

Nú ræsir maður aftur Mail for­ri­tið og gerir leið eitt aftur, nema nú stil­lir maður á Rich Text í Mail > Pref­er­encesog allir ættu að verða ham­ingjusamir aftur.

Share