Lífið í póstheimum

Ein af þeim blog­gsíðum sem ég fyl­gist reglulega með er Hawk Wings. Síðan fjal­lar að mestu um póst­for­rit á makka og þá aðal­lega Mail for­ri­tið. Ein­nig er fjal­lað um for­rit sem teng­jast Mail beint eða óbeint svo sem Address Book og iCal. Reyn­dar margt fleira. Ég hef sótt þan­gað ýmsan fróðleik og er með ólíkin­dum hvernig hægt er að halda úti svona síðu um þetta tak­markað efni.

Mér fannst tilvalið að nefna þetta núna af því ég gerði að gamni mínum nýjan haus á Hawk Wings og gaf Tim Gaden, sem hel­dur úti vefnum hann. Hausinn var set­tur strax á enda sá eldri svolítið þreyt­tur og ljó­tur. Svolítið umdeilt eins og sjá má á umsög­nunum en fle­stir orðnir sát­tir sýnist mér.

HawkWings

Póst­for­rit eru fyrir löngu orðin þungamiðja dagle­gra sam­skipta í viðskip­tum og for­ritafram­leiðen­dur kep­past við að tengja við þau almanök, heim­il­is­fan­gaskrár og alls kyns flýtileiðir sem stuðla að hægræðingu og aukinni fram­leiðni. Mik­il­vægt er að láta tölvupóstinn ekki verða að byrði á manni, reyna ná stjórn á honum áður en hann nær að stjórna þér. Hvernig væri nú áður en þú lest lengra að breyta núna póst­for­rit­inu í að láta sækja nýjan póst á kor­ters fresti í stað mínútufresti?

Í næstu útgáfu af MacOsX, Leop­ard verða tengslin milli lyk­il­for­ri­tanna iCal og Address­Book aukin til muna. Reyn­dar er Entourage allvel sam­sett í þes­sum efnum en því miður verður að seg­jast að einu brengluðu tölvuskeyti sem maður fær orðið eru frá Entourage noten­dum – ekki frá pc notendum.

Á meðan við bíðum eftir uppfærslum er ekki úr vegi að nefna að flest allt sem Mail í Leop­ard mun bjóða upp á er hægt að fá með ýmsum smáviðbó­tum. Hawk Wing er ein­mitt staðurinn til þess að komast að því hvað er hægt að gera. Þes­sar ábendin­gar varða annars vegar liti á pós­tum sem ég hef fjal­lað aðeins um áður og eins hand­virka flokkun á pósti. Lit­lar og mein­lausar viðbæ­tur sem gera lífið í póstinum mun þægi­le­gra. Lítum aðeins á tvær svona viðbæ­tur – lit­lar þúfur sem velta þungu hlassi.

Ég nota Rules, reglur í Mail mjög mikið. Fyrst og fremst er ég með reglur sem taka allar reglule­gar póst­sendin­gar sem ég fæ og lig­gur ekki lífið á að lesa. Reglurnar sjá um að færa þá pósta í undirmöp­pur. Þetta eru til dæmis bran­darasendin­gar, ýmsir póstlis­tar sem ég er áskri­fandi að, áskriftir að frét­tum frá fyrirtækjum varðandi tölvutengd efni eða jafn­vel eit­th­vað per­sónulegt svo sem varðandi fer­ðalög eða eit­th­vað í þá áttina. Lík­lega svipað hjá mörgum.

Þetta er nokkuð mikill pós­tur sem ég fæ, eit­th­vað nálægt 100 pós­tar á dag. Aðeins um 20 af þeim verða eftir í Inbox-inu hjá mér daglega. Eftir sten­dur samt sem áður að ég er með eftir hvern mánuð í kringum 500 pósta í Inbox. Útilokað fyrir mig að afgreiða og eyða eins og sumir fram­leið­ni­aukningaráhuga­menn (GTD) predika. Þarna eru alltaf fjöldi pósta sem ég vil ekki að fari sjálfkrafa í undirflokka hel­dur er ég að rem­bast við að lesa þá eftir föngum og afgreiða og hand­færi svo að því loknu í ein­hvern af undirflokkunum.

MailRecent Þegar ég hef fært hand­virkt í ein­hverja möp­puna býður Mail mér að senda aftur í sömu möppu og síðast. Það er svo sem fínt en Mail Recent viðbótin hel­dur utan um mar­gar síðustu möp­pur sem ég hef notað svona eins og mörg for­rit halda utan um nýlega notuð skjöl. Þan­nig flýtir þessi litla viðbót heilmikið flokkuninni. Halið niður, notið innset­ningar­for­ri­tið og þetta er komið inn. Afbragð.

Stór hluti þes­sara 500 pósta eru varðandi verkefni sem eru í gangi og mik­il­vægt að fyl­g­jast með því að öllum mik­il­vægum pós­tum sé sinnt. Stór hætta er á að það geti gleymst að sinna ein­staka pósti, sér í lagi af því tit­lar pósta um hvert verk eru yfir­leitt mjög líkir. Ég hef bent á það hérna áður hvernig hægt er að lita pós­tana hand­virkt en nú förum við yfir á næsta stig.

Til þess að lita pós­tana og aflita suma aftur þegar þeim hefur verið sinnt nota ég viðbót sem heitir Mail Act-On. Þessi ókeypis viðbót nýtir í raun Rules til þess að lita pós­tana og reyn­dar getur hún gert miklu fleira. Fært pósta í tiltek­nar möp­pur og hvað eina sem reglurnar bjóða upp á – keyrt af stað með hnap­pask­ipunum. Mail Act-On getur ein­nig leyst Mail Recent af hólmi ef maður vill það frekar. Nokkrar tilbú­nar reglur fyl­gja með sem auðvelt er að breyta og laga svo það er ekkert mál að stilla þetta í sna­tri. Best er að gæta hófs í þessu eins og alltaf og byrja bara á nokkrum ein­föl­dum skipunum sem öruggt er að maður muni. Hérna er dæmi um hvernig reglan „sinna“ er sett upp hjá mér.

MailActOn

Sem dæmi nota ég þetta svona: Ég nota +, plúsh­nap­pinn (vin­stra megin við Return) sem grunnskipanah­napp eða Act-On Menu Key og bæti svo við stö­fum með sem gera mis­mu­nandi hluti.

  • + G læt ég lita póstinn gulan, sem er mest æpandi liturinn. Þetta þýðir hjá mér að þarna sé pós­tur sem virk­i­lega þarf að sinna og má ekki klikka.
  • + H Þegar verk­inu er lokið eða því sem pós­turinn kallaði á geri ég + H, sem gerir póstinn hví­tan aftur — búið.
  • + F gerir viðko­mandi póst föl­bleikan, en það þýðir að pós­turinn varðar letur­mál á ein­hvern hátt. Oftast eit­th­vað sem ég þarf að vinna með letur.
  • + T föl­brún­leitur litur, tölvumál sem þarf að sinna, kvit­tanir vegna for­ri­takaupa og svoleiðis.
  • + I æpandi grænn, per­sónu­leg mál sem ég þarf að sinna.

Hver og einn lagar þetta að sínum þör­fum og litas­mekk og bætir svo við því sem þurfa þykir. Hawk Wings er með úrval upplýsinga um aukahluti, ókeypis og til sölu og ekki vit­laust að kíkja við og sjá hvort þar er ekki eit­th­vað sem maður vissi ekki að mann vantaði.

Share