Fljúgandi Hollendingur

Hollendingar hafa löngum staðið framarlega í leturhönnun. Kannski ekki skrítið þegar litið er til þess að Holland hefur í margar aldir verið höfuðvígi vandaðrar prentunar. Það eru ekki svo mörg ár síðan prentarar gengdu því hlutverki sem grafískir hönnuðir gegna nú og sama gildir um leturhönnun.
Ótrúlegur fjöldi leturhönnuða eru í Hollandi sem sjá má á þessum tengli .
Mig langar að benda í þetta skiptið sérstaklega á einn þeirra og vef hans René Knip, sem ekki hannar aðeins letur heldur nýtir sér það í grafískar útfærslur fyrir fyrirtæki og stofnanir en einnig til listsköpunar og tilraunastarfssemi. Nokkuð magnað finnst mér. Þeim sem falla fyrir þessu er bent á bókina A.R.K. Ten years of Type Related Projects 1994 — 2004 (sem reyndar er sögð uppseld í bili).

