Letur ársins 2006 hjá Myfonts.com

Canadatype

Myfonts.com er vefur sem allir leturáhuga­menn ættu að hafa í bókamerki hjá sér. Mánaðar­lega senda þeir út frét­tabréf þar sem þeir kynna letur mánaðarins undir for­merkjunum Ris­ing Stars. Hægt er að skrá sig hér til þess að fá frét­tabré­fið og skoða eldri bréf sem maður kynni að hafa misst af.

Janúar­frét­tabré­fið hjá þeim er svo val á letri ársins. Í ár varð hlut­skarpast Swan Song sem er frá Cana­datype (í Kanada nát­túrulega). Flest letrin hjá Cana­datype eru hön­nuð af Patrick Grif­fin og lig­gja eftir hann mikill fjöldi letra enda hann er afar afkastamikill.

Ég er sérstak­lega ánægður að segja frá þessu þar eð ég hef þekkt Patrick í mörg ár á vegum ver­al­darvef­sins. Um daginn gafst mér tæk­ifæri á að kyn­nast honum enn betur því hann var einn af þeim sem ég fer­ðaðist með í Ban­daríkjunum um daginn.

Share