Mac­World­Expo 2007

Það fór sem mig grunaði að enginn tími var til þess að skrifa pistla. Ég kom heim á mánudaginn var, 15. janúar og hef aldrei áður verið haldinn eins mikilli þotuþreytu.

Í stuttu máli var þessi ferð aðeins meira en að fara á Mac­World sýninguna í San Fran­cisco sem haldin var 7.-12. janúar. Ég hafði samþykkt að taka þátt í fer­ðalagi nokkurra félaga sem ég hef þekkt í geg­num netið, suma í allt að tíu ár. Sumum kann að finnast þetta undar­legt að fara að hitta svona bláókun­nuga menn. Það skondna er að ef manni hefur líkað fólk á net­inu, kann maður líka við það þegar maður hit­tir það „life“. Þetta hef ég marg reynt.

Ég flaug til Port­land í Ore­gon 2. janúar. Eftir 24 stunda fer­ðalag komst ég inn á hótel á flugvel­linum í Port­land. Þá var klukkan næs­tum þrjú að nóttu þar. Um níu­leytið morguninn eftir var ég sót­tur á hótelið af Michael Lynch, sem ég hef þekkt í næs­tum tíu ár í leturáhuga­man­nakreðs á net­inu. Hann skip­u­lagði þetta fer­ðalag okkar og sá um að panta alla gistingu og veitin­gas­taði, ásamt því að leg­gja til stóran bíl til fararin­nar. Við fórum aftur upp á flugvöll og sót­tum þrjá aðra félaga okkar. Þetta eru allt saman mik­lir áhuga­menn um letur­mál af öllu tagi. Eigin­lega meira en það – sumir eru leturhön­nuðir að atvinnu.

Við vorum í góðu yfir­læti í heimabæ Michael, New­port (þar sem Keikó heitinn átti heima) 3. og 4. janúar. Eins og gefur að skilja var kátt á hjalla og mikið skrafað um áhugamálið og reyn­dar var margt annað sem bar á góma. Þrír af okkur fer­ðalön­gunum, ég, Ale­jan­dro Paul frá Argen­tínu og Patrick Grif­fin frá Kanada, hél­dum svo fyrir­lestra í MUG­Port um ýmsa anga letur­mála. Ég hef minnst á Ale­jan­dro áður hér en segi aðeins meira af Patrick síðar. Auk þes­sara var með okkur Breti sem býr í Los Ange­les, Guy Old­ham. Frábær náungi. MUG­Port er Mac User Group þeirra í New­port. Michael er for­maður félagsins og við vorum að gera honum smá greiða upp í allan undirbúninginn sem hann sá um fyrir okkur. Hægt er að kíkja á myn­dir frá fyrir­lestrinum á síðu MUG­Port.

Við gis­tum á hótelinu Elis­a­beth Inn þarna í bænum en heim­sót­tum Michael og fjöl­skyldu hans og borðuðum með þeim kvöld­mat á veitin­gas­taðnum Local Ocean sem sten­dur við höfn­ina. Fyrir fyrir­les­turinn borðuðum við öll aftur á Saf­fron Salmon sem ein­nig er við höfnina.

5. janúar lögðum við eld­snemma af stað í áttina að SF en sú leið er um 800 km. Keyrðum meðfram ströndinni sem er ákaflega fal­leg leið. Póstko­r­tasýn alla leið. Gis­tum eina nótt á mjög sérstöku hóteli, The Ben­bow Inn sem lík­tist helst sögusviði úr Agötu Christie bók. Frábær veitin­gas­taður og vín þar ekki af verri endanum.

Daginn eftir þann 6., hél­dum við svo áfram fer­ðinni í geg­num rauðviðarskó­gana og gerðum svo stut­tan stans í SF til þess að taka upp einn fer­ðafélaga í viðbót.

Þá var haldið enn lengra suður á bóginn til Carmel. Þar var Clint East­wood bor­garstjóri í nokkur ár eins og kun­nugt er. Við gis­tum í tvær nætur á búgarði sem hann á Mis­sion Ranch. Mjög skemmti­leg aðs­taða og ágætis veitin­gas­taður og bar þarna á staðnum. Þaðan gerðum við svo út til þess að skoða meira af því sem Ban­darík­jamön­num með sína stuttu sögu finnst mikið til koma í sínu heima­landi. Top­purinn af því var heim­sókn í Hearst Cas­tle, fyrrum bús­taðar Hearst blaðakóngs (Cit­i­zen Kane). Undar­legasta fyrir­bæri það, sam­set­ningur af stílum og stefnum í lan­gri sögu Evrópu en fróðlegt og tilko­mu­mikið að sjá.

Inn í San Fran­cis­coborg ren­ndum við um hádegis­bilið þann 7. Eftir að hafa skoðað nokkra skemmti­lega staði svo sem Golden Gate brúnna, sem ég var í raun að sjá í fyrsta skipti núna og Cas­tro Street sem Dóri min­nist á fórum við og gengum frá skráningu á Mac­World sýninguna. Nokkrir af þeim sem voru með í hóp­num vildu ólmir komast á Keynote og keyptu dýra passa til þess að fá rétt til þess. Ég ákvað að breyta ekki af venju minni og sleppti Keynote eins og vanalega.

Við mel­duðum okkur svo allir á sama hótelið og þar bæt­tist Hol­lendin­gur í hópinn, félagi okkar af net­inu sem ekki hafði samt haft tök á því að fara í langfer­ðina miklu.

Mac­World Expo var haldin frá 7.-12. janúar eins og áður sagði. Sýningin sjálf hófst þann áttunda að lokinni fram­sögu Steve Jobs um iPhone og Apple TV og fleira. Mér finnst alltaf jafn fróðlegt að sjá sýninguna og geta hitt full­trúa fram­leiðenda og spurt spjörunum úr á staðnum. Oftast kemur eit­th­vað fram sem ekki næst með því að lesa eingöngu vef­síður fyrirtækjanna.

Næstu þrjá daga sat ég svo meira og minna fyrir­lestra sem boðið er upp á enda var það megin­til­gan­gurinn með minni ferð á sýninguna. Þarna fæst í hnot­skurn mikið magn af upplýsingum um ýmis makkamál og fyrir mér er þetta ótrúlega skemmti­legt og fróðlegt. Nesti til mar­gra mánaða. Ég ætla ekki að bæta neinu við lýsingu á sýningunni sjál­fri eða dót­inu sem var þar kynnt. Af nógu er að taka annars staðar um það. En síminn var samt ros­alega flottur.

Share