ID : AI : PS : Límt á sama stað – Paste in Place

Þegar maður afritar eit­th­vað í grafískum for­ri­tum og límir svo með Copy­Paste, límist hlu­turinn yfir­leitt á þann stað sem er á miðjum skjánum eða á miðri síðunni sem er verið að vinna í.

InDesign

Í InDe­sign er ein ágætis skipun, Paste in Place, sem ley­fir manni að líma afritaðan hlut, textabox, leiðar­línur eða inni­hald heil­lar síðu, í nákvæm­lega sömu staðset­ninu á annarri síðu. Líka á Mas­ter síðurnar. Þetta sparar manni ómakið við að mæla og færa það sem var verið að afrita. En hvað með hin forritin?

Photoshop

Í Pho­to­shop er hægt að stýra límingu að hluta til með því að velja ákveðinn flöt með valtólinu Mar­quee og nota skipun sem er Paste Into. En þetta leysir alls ekki staðset­ningar­málið. Ein afbragðs leið er að nota Dupli­cate Layer sem að sjálf­sögðu setur hlutinn á nákvæm­lega sama stað beint fyrir ofan. En það er líka hægt að nota þessa skipun til þess að senda Lay­erinn í annað skjal eða láta verða til nýtt skjal.

Dæmi: Við erum að vinna Pho­to­shop skjal í CMYK litum. Skjalið er í fjölda af lögum. Nú vill maður ólmur nota fil­ter á einn ley­erinn en því miður virkar ekki þessi fil­ter í CMYK, aðeins í RGB.

TEAlltSamaStad2

Við veljum þá Lay­erinn og förum í FlyOut-ið, hliðar­valseðil palet­tun­nar og þar veljum við Dupli­cate Layer. Í stað þess að samþykkja það sem er for­valið, ýtum við á Doc­u­ment hnap­pinn. Hann sýnir nöfn allra opinna PS skjala og gefur ein­nig kost á New.

TEAlltSamaStad3

Við veljum New. Við þetta verður til nýtt skjal úr þes­sum layer. Skjalið er af nákvæm­lega sömu stærð og frum­sk­jalið þótt myn­din á lay­er­num geti verið miklu minni. Og það sem meira er, það er glær bak­grun­nur. Þetta tryg­gir að þegar við erum búin að gera allt sem við vil­dum við þessa nýju layer-mynd; snúa í RGB, setja þá fil­tera á sem við þurf­tum og svo framvegis, getum við sent þetta skjal með sömu aðferð inn í fyrstu myn­d­ina sem sjálf­stæðan layer og allt á nákvæm­lega sama stað og það var áður.

TEAlltSamaStad4

IllustratorÍ Illus­tra­tor er oft hen­tugt að geta límt hlut á nákvæm­lega sama stað í stað þess að hann límist þar sem er á miðjum skjánum þegar maður notar sla­ufa + V. Í stað þess er betra að nota sla­ufa + F, Paste in Front. Þá límist hlu­turinn á nákvæm­lega sama stað. En það er allt eins hægt að líma hlutinn á sama stað í öðru skjali.

Dæmi um til­felli þar sem þetta nýtist vel: Þegar er verið að búa til röð skjala sem eru eins í uppset­ningu, t.d. pakkningar í setti, greiðs­luko­r­talína þar sem sömu hlu­tir eru notaðir í geg­num línuna og þar fram eftir götunum. Þótt segja megi að auðvi­tað byrji maður á því að gera Save As… til þess að fá skjölin alveg eins, þá er verra mál ef ein­hver ný ele­ment bætast við sem þurfa að fara á allar gerðirnar. Þá er gott að vita af þes­sum möguleika við að líma milli.

TEAlltSamaStad1Þessu til viðbó­tar er rétt að benda á að ef það sem er límt svona á milli er á mör­gum leyerum er hægt að stýra því hvort klessist saman á einn layer á áfan­gas­tað eða taki með sér ley­era á milli skjala. Þetta er gert í Layer palet­tunni > Paste Remem­bers Lay­ers.

Eitt sem getur komið fyrir þegar þes­sar kún­stir eru gerðar í Illus­tra­tor að hlu­tirnir hætti að fara á sama stað. Það kemur til af því að núllpunk­tur reglustikun­nar er ekki sá sami milli skjalanna, hefur verið færður til. Paste in Front staðse­tur sig nefni­lega út frá núllpunktinum.

Við þessa grein komu á sínum tíma þessi com­ment sem duttu út þegar ég flutti vefinn:

Dóri:

Má ein­nig geta þess, að draga á milli tveg­gja opinna skjala í Pho­to­shop — ef þú dre­gur tvo Layer’a milli skjala þá getur þú haldið inni SHIFT takkanum á meðan þú slep­pir Layer’num í hinu skjal­inu. Lay­erinn límist á sama stað (út frá reglustiku) og hann var í upprunalega skjalinu.

Stebbi:

Eitt trikk sem ég nota mjög oft (og hef gert í mörg ár) er að nota passklossa til að staðsetja hluti rétt í Phot­shop fæla. Þetta kemur að góðu gagni sérstak­lega þegar maður er að kópíera upp úr Illus­tra­tor en má líka nota Photoshop-í-Photoshop á meðan fælar eru jafnstórir.

Maður byr­jar á því að pleisa Pho­to­shop mynd (t.d. eps af frum­fæl) inn í Illó. Send to back (eða X-a og sla­ufa B).

Draga ruler guides og lætur þau snappa inn á hornin á myn­dinni sem búið er að pleisa.

Teikna litla fer­ninga (passklossa) í ein­hver­jum lit og lætur þá ’snap to guides’ í hornin, efst til hægri og neðst til vin­stri. (Efst til vin­stri og neðst til vin­stri virkar ekki eins vel — pixlar geta klippst af í límingu.)

Vec­tordót teik­nað áfram inn á flötinn sem afmarkast af passklos­sunum. (Má vera í layerum eða wotever.)

Copy (með klos­sunum) og Paste inn í Photoshop.

Þá lendir það sem verið er að peista akkúrat inn á rét­tan stað.

Þur­rka svo út passklos­sana og bingó

sig­u­rarm:

Flott viðbæ­tur. Ég bæti því þá hér við að þegar ég þarf ekki á súper nákvæmi að halda, nota ég svona sam­spil AI og PS gríðar­lega mikið.

Vista eps úr PS og set í AI

Tek skjáskot af öllu í AI með slaufa+Control+Command+4 (til þess að drusla ekki út á Desktop)

Lími svo með slaufa+V í PS og glenni þen­nan layer upp í fulla stærð, set í svona 50% Opac­ity og nota sem viðmið.

Share