Adobe : Nýtt útlit á for­ri­tatákn­myn­dum, íkonum

Adobecs3newicons

Það hefur ekki farið framhjá þeim sem hafa náð sér í nýju útgá­funa af Pho­to­shop að það er búið að breyta útl­iti tákn­myn­danna, íko­nanna á for­rit­inu, upphaf­s­glug­gans og fleira.

Í fyrstu datt mér í hug að Ps á bláum fleti sem tákn fyrir Pho­to­shop og Br fyrir Bridge væri bara bráðabirgða útlit. En mér finnst þetta mjög flott. Ég sé í þessu ákveðna tilví­sun í lotutöfluna, töfluna þar sem frumefnin eru tekin saman. Sú tafla og þessi uppset­ning á skamm­stö­funum hefur alltaf höfðað mikið til mín grafísk séð alla tíð síðan ég barði hana fyrst augum. Ég nota líka mikið sjál­fur svona skamm­stafanir, meðal annars hér í þes­sum skri­fum: AI, ID, PS og svo framvegis.

Ég rakst á fróðlega grein um þetta íkon­amál hjá Adobe og þar kemur í ljós að það sem við sjáum Ps og Br er rétt byr­junin á heilli fjöl­skyldu nýrra íkona og ytra útl­its. Enda hefur for­ritafjöl­skyl­dan stækkað all verulega í seinni tíð og ekki alveg þau­ta­laust að fylla upp í línuna með vel aðgreinan­legum merkjum. Nógu erfitt hefur verið að greina á milli sumra hin­gað til þótt tákn­myn­dirnar hafi sem slíkar verði mjög flot­tar og öll önnur umgjörð. Þau hafa þar fyrir utan ekki haft nein þau tákn innbyrðis sem gætu gefið manni í skyn hvaða for­rit er hvað.

Litirnir sem notaðir í bak­grun­nana eru sót­tir úr fyrri íkonum, appel­sínugult fyrir Illus­tra­tor, blátt úr fjöðrinni í Pho­to­shop, brúnt úr kuðungnum í Bridge og þan­nig áfram.

Per­sónulega hlakka ég til að fá sem flest af þes­sum nýju tákn­myn­dum í kvínna hjá mér. Þau sem komin eru líta mjög vel út. En um þetta eru auðvi­tað deil­dar meiningar eins og búast mátti við. Reyn­dar eru sumir mjög fúlir yfir þessu.

Enn eru svona fjórir til fimm mánuðir í að CS3 pakkinn komi út – vonandi styt­tra. Þeir sem vilja kynna sér nýjun­gar í Pho­to­shop og Bridge ættu að geta fundið ein­hver fróðleik­sko­rnin á lynda.com, Pho­to­sho­puser, Pho­to­shop­sup­port, Lay­ers­magazine og Plan­et­Pho­to­shop,

Share