2007 almanak
Nú árið er liðið… næstum því. Síðasti vinnudagur ársins samkvæmt venjulegu almanaki vinnudaganna.
Ég er eiginlega mjög sáttur við árið 2006 og vona að sjálfsögðu að árið 2007 verði enn skemmtilegra. Framundan er ferð hjá mér á MacWorld sýninguna í San Francisco sem hefst þann 7. janúar. Ég legg hins vegar í hann 2. janúar því ég ætla að ferðast með nokkrum félögum í bíl frá Portland í Oregon niður til SF. Það verður nú samt ekki farið í hálfónýtum kadilakk. Einnig stendur til að ég haldi fyrirlestur hjá MUGPort í Portland ásamt hluta ferðafélaganna um eitthvert leturtengt efni. Sennilega mun ég fjalla um LinotypeFontExplorerX.
Ég ætla að reyna að koma einhverju frá mér á font.is á meðan á ferðinni stendur en það verður þó að ráðast. Það er reynsla mín að ég er á fullu frá morgni fram yfir miðnætti og ég er ekki að skrökva þótt ég segi að ég hef nánast ekkert séð af SF þrátt fyrir að hafa farið á tvær sýningar þar áður.
Í tilefni af byrjun nýs árs bjó ég til plakat í samstarfi við prentsmiðjuna Think, Faxafeni 14 (Miklubrautarmegin í húsinu). Plakatið, sem er 470 x 1000 mm að stærð, er almanak fyrir árið 2007.
Öllum lesendum font.is er boðið ókeypis eintak með þökk fyrir lesturinn, með því eina skilyrði að þeir beri sig eftir því hjá prentsmiðjunni. Þar verður tekið vel á móti fólki og er þá tilvalið tækifæri til þess að kynna sér gæðin og möguleikana hjá þessarri litlu, en samt stóru (og stórgóðu) prentsmiðju. Hún er nefnilega ein af þessum lítið þekktu perlum í bransanum.
Ég held svo áfram að krota á nýju ári um það sem mér finnst spennandi. Adobe CS3 er væntanlegt fyrr með vorinu og ýmislegt annað að gerjast. Slatti af greinum eru í sarpnum sem ég er búinn að leggja fyrstu drög að og bíða bara eftir að fá smá tíma í úrvinnslu.
Að þessu sögðu þakka ég fyrir lesturinn þar sem af er og vona að það sem ég hef verið að hripa hér á síðurnar hafi verið lesendum til einhvers gagns og gamans. Ekki gleyma að kíkja við hjá Think og grípa almanakið!
Gleðilegt ár 2007


[…] This post was Twitted by sigurarm […]