Litablöndun með Kuler
Ég skrifaði nýlega um skemmtileg tól til litablöndunar. Nú hefur bæst nýtt tól í þennan flokk frá ekki minni aðila en Adobe. Þeir kalla þetta Kuler sem er einhvers konar orðaleikur með Cool og Colour.
Það er greinilegt að þeir hafa kíkt einhvern tíma á colorblender.com en þeir hjá Adobe taka hugmyndina aðeins lengra og ætla sér að vera með allsherjar litaspekúlasjónir þarna undir.
Endilega kíkja á Kuler. Það þarf að vera með nýjustu útgáfu af Adobe Flash Player skoðara til þess að kíkja á þetta en maður er leiddur í gegnum allt það ferli ef með þarf.

