Og táknið – Ampersand

Ampersand1& táknið, sten­dur fyrir orðið „og“ en er styt­ting á lat­neska orðinu „et“ sem þýðir það sama – og.

Táknið á sér ýmsar fjöl­breyti­le­gar myn­dir í letri. Elstu heim­ildir um notkun á tákn­inu er að finna í rómver­sku han­driti frá því um 75 eftir Krist. Langþekk­tas­tar eru & myn­dir af því, en nokkrar aðrar grun­nút­gá­fur eru til. Lík­jast sumar oft öfugum þre­mur eða öllu hel­dur E og oft má sjá móta fyrir bæði e og t í þes­sum táknum.

Táknið heitir líka Amper­sand, leitt af „and per se and“ sem ég treysti mér varla til að þýða.

Þetta og-tákn er lítið notað hér á landi og önnur afbrigði en þetta & eiga frekar erfitt upp­drát­tar af því þau virka full fra­mandi á marga. Nokkur synd, því skemmti­le­gra væri að hafa meiri fjöl­breytni í þessu sem öðru. Ein­nig eru þessi tákn með þeim fal­l­e­gri í letrum. Vert er að skoða hve oft er mikill munur á &-tákn­inu milli Reg­u­lar og Italic gerða letursins. Dæmi: Hoe­fler Text Reg­u­lar & Italic; Fago Reg­u­lar & Italic.

Ampersand2

Share