ID : Text Exporter
Flest allir sem vinna við umbrot lenda fyrr eða síðar í því að viðskiptavinurinn þarf að fá lokatextann út úr verkinu aftur. Sá texti er náttúrulega sá sem er mest unninn, úthugsaður og prófarkalesinn. Í margra blaðsíðna verki er það enginn skemmtigjörningur að taka saman textann og púsla saman til sendingar.
Lítil og ókeypis viðbót kom nýlega út fyrir InDesign sem gerir þetta verk eilítið bærilegra. Það heitir því einfalda og lýsandi nafni Lightning Brain Text Exporter. Framleiðandi er fyrirtæki sem heitir Rorohiko (sem þýðir tölva á Maori).
Um að gera að ná sér í þetta og prófa því þetta virkar mjög fínt. Sem dæmi má nefna að ef maður velur að vista textann með Rich Text sniði, rtf, vistast textinn í sömu leturgerðum og voru notaðar í verkinu í InDesign.
Rorohiko býður upp á nokkrar fleiri viðbætur á síðunni sinni. Flest ókeypis.

