ID : Flýtiskipanir fyrir stílsnið

Mar­gir sem hafa mikla reynslu af umbroti í Quark en vinna núna meira eða eingöngu á InDe­sign sakna þess að hafa ekki aðgang að f-hnöppunum til þess að hengja stíl­sniðin (Para­graph Styles) á. Það er ekki alveg klárt afhverju Adobe ley­fir ekki að þes­sir hnap­par séu notaðir í InDe­sign nema með öðrum aukahnöppum.

Kos­turinn við að hengja stíl­sniðin við f-hnappana er augljós: Aðeins eitt hand­tak með vin­stri hendinni. Fle­stir aðrir valko­stir virðast í saman­burði vera fjallabaksleið.

En hver­jir aðrir kostir eru í stöðunni? InDe­sign býður upp á þann möguleika að hengja næs­tum hvaða aðrar skipanir á stíl­sniðin svo sem að nota talnaborðið með ein­hver­jum breyti­h­nappi, til dæmis Sla­ufa + Option + 1 fyrir fyrirsögn og svo framvegis. Mar­gir nota þetta og hafa jafn­vel notað allar götur síðan í Quark.

Ég notaði á árum áður QuicK­eys mikið til þess að bæta upp skort á hnap­pask­ipunum. Rey­nar er ég farinn að nota QuicK­eys aftur fyrir annað en í dag þegar Adobe for­ritin sjálf bjóða upp á að búa til skipanir er það lík­lega full langt gengið að bæta við QK eða sam­bæri­legum for­ri­tum ofan á það allt saman.

Hins vegar er ein leið sem menn ættu að skoða van­dlega. Ein leið og smá pæling um verk­lag. Segjum sem svo að við byr­jum á að búa til nokkur algeng stíl­snið, fyrirsögn, mil­li­fyrirsögn, megin­mál, megin­mál með inndrætti sem dæmi. Skírum sniðin svona:

  • fs fyrirsögn
  • mf millifyrirsögn
  • mm meginmál
  • mi megin­mál m inndr (byg­gjum þessa auðvi­tað á mm)

Nú setjum við textabendilinn inn efst í tex­tann og notum efir­leiðis aðeins píluh­nap­pana til þess að færa okkur milli máls­greinanna. Tilvalið er í framhald­inu eftir lestur þes­sarar greinar að tileinka sér skipanir við að færa píluna um tex­tann eins og lýst er í annarri grein hérna á setrinu.

Þegar bendillinn er kominn á sinn stað sláum við inn: Sla­ufa + Return. Við þetta opnast paletta uppi til hægri með lista yfir öll stíl­sniðin sem við erum búin að búa til. Eins og sést er lítill innset­ningar­gluggi á þes­sari palettu. Þetta er sía á stíl­sniðin og nóg að slá á hnap­paborðið til þess að einan­gra stíl­sniðin þar til það eitt er eftir sem við ætlum að nota. Ef maður slær til dæmis inn m verða eftir þrjú snið en um leið og næsti sta­fur er sleginn inn f, m eða i, þrengist valið þar til eitt er eftir.

Á hnap­paborðið sláum við inn: fs og svo Return á eftir. Við þetta fer öll máls­greinin í fyrir­sag­nastíl­sniðið. Færum okkur með pílunni yfir í næstu máls­grein, sla­ufa + Return, sláum inn mf og sú máls­grein er komin í millifyrirsagnarstílsniðið.

Megin kos­turinn við þessa leið er sá að maður getur haldið hön­dunum á hnap­paborðinu og getur sleppt því að teygja sig yfir í músina til þess að velja stíl­sniðin af Para­graph Styles palet­tunni. Næs­tum því eins gott og f-hnappaleiðin.

Það er svo undir hver­jum og einum komið með útfærslur á þessu og betrum­bæ­tur. Kæmi til greina í ein­hver­jum til­fel­lum að setja allan tex­tann í megin­málss­nið fyrst og renna svo bara yfir tex­tann aftur til þess að breyta yfir í fyrir­sag­nir og mil­li­fyrir­sag­nir? Það væri gaman að heyra hvort ein­hver­jir hafa ein­hver­jar snjal­lar viðbæ­tur við þetta.

Share