Fjaðrir í hat­tinn : Akismet og Mod­er­ate Brief Com­ments fil­terar fyrir WordPress

Þessi pis­till er meira eða minna fyrir mig sjál­fan til þess að geyma dagset­ninguma sem ég setti svokallaða spam vörn á þen­nan vef : 14.11.2006. Þar höfum við það.

Þeir sem stunda að senda spam beita öllum tiltækum ráðum við að koma því til fólks. Senda tölvupósta, vírusa sem senda pósta frá sak­lausum (pc)-notendum og hvað eina. Eitt af því sem er mjög vin­sælt er að senda pósta inn á blog­gvefi sem svar við greinum. Og svo hanga við allkyns tenglar sem vonast er til þess að fólk smelli á. Fle­stir sem lesa blogg reglulega hafa séð þetta.

Mjög mis­jafnt er hversu mikið berst inn á blogg með þes­sum hætti og ein­nig mis­jafnt hversu vel blogg hug­bú­naður ver blog­gara við þes­sum ófögnuði.

Hug­bú­naðurinn sem ég nota er Word­Press. WP gefur kost á að stilla com­mentin eða svörin þan­nig að þau fara ekki inn fyrr en þau hafa verið samþykkt. Þan­nig samþykkir maður notanda í fyrsta skipti en svo þarf ekki að samþykkja hann aftur. Tilkynnt er um svar með pósti og svarið bíður þar til ég kíki á og samþykki.

Þetta er fínt kerfi – þar til spam­mið byr­jar. Í júní eða júlí byr­jaði að aukast svona spam og var svo komið nú um mánaðamótin að á hver­jum degi biðu í kring um tvöhun­druð spam­pós­tar eftir að ég gerði eit­th­vað, samþykk­tið eða eyddi. Þetta er alger tímaþjó­fur og hrein­lega drepleiðinlegt.

Ég setti því upp tvo fil­tera sem sjá um þetta fyrir mig og vona að það bitni ekki á neinum. Ef ein­hver er að senda inn svar við ein­hverju sem er skri­fað hér og það birtist ekki innan sólarhrings, vin­sam­le­gast sendið mér tölvupóst svo ég geti lagfært málið.

Þes­sir fil­terar sem ég setti upp eru annars vegar Akismet og hins vegar Mod­er­ate Brief Com­ments, sem er ætlað að stoppa upp í götin á Akismet. Enn sem komið er hafa þes­sir tveir fil­terar gripið hvern einasta spam­póst sem beint er að font.is. Tel­jarinn sem er hérna á hliðarvængnum er tel­jari fyrir Akismet. Sést þar áþreifan­lega hvað er í gangi.

Ég gef þes­sum fil­terum fimm fjaðrir.

Share