Apple : Under­cover – ekki fyrir Bjarnarbófa

Er hægt að mæla með for­riti sem maður vonar að aldrei þurfi að nota? Reyn­dar. Það eru til for­rit sem eru eins og tryg­gin­gar – maður kaupir sér tryg­gingu og vonar að maður þurfi aldrei að nýta sér þær.

ORBUndercoverUnder­cover for­ri­tið frá Orbicule er ein­mitt svona. Maður setur það á fartölvuna og vonar að maður þurfi ekki virkja það og að tölvunni verði aldrei stolið.

En ef tölvunni er stolið fer ýmis­legt að gerast. Til að byrja með sendir maður póst með lykil­númeri sem fyl­gir for­rit­inu til Orbicule og þar með er töl­van komin í gagna­banka yfir stol­nar tölvur. Í framhaldi af því fara að berast úr tölvunni upplýsin­gar um hvar í heiminum töl­van er tengd, úr hvaða net­fangi pós­tur er sendur úr tölvunni. Netþjónustu­fyrirtækjum er falið að rekja staðset­ningu og svo framvegis.

Þetta er bara rétt byr­junin. Samtímis þessu fara að berast í gagna­bankann skjáskot úr tölvunni á nokkurra mínútna fresti án þess að notandinn verði þess var og iSight sendir jafn­framt myn­dir á sex mínútna fresti af þeim sem er að nota tölvuna.

Ef þetta allt dugir ekki fljótlega til þess að hafa upp á tölvunni fer plan B í gang. Töl­van fer að sýna bilunareinkenni sem felast í því að sjárinn dökknar stöðugt þar til hún verður ónothæf og þarf að fara í viðgerð. Þar á eftir kemur upp letur þvert yfir skjáinn ætlað þjónus­tu­aðilum sem segir að þessi tölva sé stolin og fun­dar­launum heitið (sem Orbicule ábyr­gist og greiðir) ef tölvunni verður skilað.

Til þess að toppa þetta fer töl­van á mesta hljóðstyrk og byr­jar að kalla að sér hafi verið stolið.

En hvað ef þjó­fu­rinn vissi af þjó­favör­num af þessu tagi og forsniði diskinn? Það myndi vis­sulega eyða ein­hver­jum þjó­favör­num en ekki þes­sari. Under­cover skráir sig inn í firmware og þur­rkast því ekki út nema rétt raðnúmer sé notað við að fjar­lægja for­ri­tið og að firmware aðgan­gur sé notaður.

ORBTheftSensorOrbicule hefur ein­nig búið til for­ri­tið Theft­Sen­sor sem þeir gefa. Þetta er eitursn­jallt for­rit sem ræst er með fjarstýringunni. For­ri­tið nýtir hög­gvörn­ina í fartölvunum til þess að kveikja á ger­sam­lega óþolandi hávaða úr tölvunni sem engin leið er að slökkva á nema með fjarstýringunni, ef töl­van er hreyfð eða lok­inu hal­lað aftur. For­ri­tið nýtist þó aðeins þegar hún er skilin eftir opin ein­hvers staðar og ekki hægt að virkja það ef töl­van er lokuð.

Under­cover kostar 39 dol­lara, sem mjög viðráðan­legt. Ég er í það minnsta búinn að setja for­ri­tið á mína tölvu og berst við freistin­guna að láta stela henni svo ég geti séð fer­ilinn fara í gang.

*Athugið að til þess að allt þetta virki sem nefnt er hér verður töl­van að vera Mac­in­tosh tölva með því innbyg­gðu sem talið er upp, svo sem hög­gvara, iSight og Tiger.

Share