Apple : Fín leið til þess að þysja — zoom
Það eru bísna margir sem fara helst ekki inn kerfisstillingarnar, System Preferences – nema kannski til þess að breyta skjáborðsmyndum hjá sér. Þarna komast forvitnir í feitt. Eitt af þeim atriðum sem boðið er upp á að gramsa í er Universal Access.
Þegar litið er inn í Universal Access sést að þarna er boðið upp á ýmis hjálpartæki sem mörg hver eru hugsuð fyrir þá sem eru með fötlun af einhverju tagi, t.d. sjón– og heyrnarskerðingu eða hreyfihömlun. Sumar af þessum stillingum eru á þegar nýtt kerfi er sett á tölvuna til dæmis eiginleiki tölvunnar til þess að lesa texta og eins þysjun eða súmm.
Suma af þessum eiginleikum þarf að virkja þarna í stjórnborðinu eða þá með hnappaskipunum. Eins er aðgangur að þessum skipunum í Keyboard & Mouse stjórnborðin. Sem dæmi virkjar maður eða aftengir súmmið með slaufa + option + 8, sem er ekkert sérstaklega líklegt að maður slysist á en eftir að það er virkjað er alls ekki svo ólíklegt að maður þrusi fingrunum á slaufa + option + ö eða -. Ekki síst ef fólk er að vinna með teikni– eða umbrotsforrit.

Fyrir flesta eru þessar aðgerðir ekki svo mikilvægar að menn leggi á sig að muna hverjar skipanirnar eru. En samt sem áður þarf maður ekki að vera fatlaður til þess að geta nýtt sér sumt af þessu annað hvort til gagns eða gamans. Sundum þarf bara smá hugmyndaflug.
Sem dæmi má nefna það sem ég nýti mér helst af þessu, súmmið. Upplagt er til dæmis að stækka aðeins upp litlar hreyfimyndir á netinu svo eitthvað sé nefnt. En samt finnst mér ómetanlegt við kennslu með tölvu eða fyrirlestur að geta sett súmmið á til þess að sýna stærri einhver atriði þegar það kemur upp á. En þá finnst mér dálítið löng leið til þess að setja þetta á í flýti.
Af þessum sökum er ég rosa ánægður með stillingu sem áður var bara tengd Mighty Mouse músinni frá Apple, en kom núna inn fyrir alla með stýrikerfi 10.4.8. Þetta er ný leið til þess að súmma. Skrunhjólinu á músinni er ýtt fram og aftur og stjórnhnappnum haldið niðri í leiðinni. Því miður fara hlutir aðeins úr fókus en það er í raun aukaatriði en mér skilst að það verði miklu betra í Leopard, næstu útgáfu af stýrikerfinu.
Prófa núna!

