AI : ID : Textabox

AITabStika

Ég ætla nú bara að fjalla lítil­lega um einn þátt tex­takassa í Illus­tra­tor – og aðeins í InDe­sign sem ég hef heyrt fólk vera að pirra sig svolítið á.

Þan­nig er mál með vexti að þegar hafa verið set­tar máls­greinas­till­ingar í InDe­sign og Illus­tra­tor á tex­takassa, svo sem inndrát­tur og tab dálka­still­ingar, hal­dast þær þótt boxið sé minnkað. Sem þær eiga auðvi­tað að gera ef maður er ein­faldlega að breyta lögun kassans.

En málið verður aðeins flók­nara ef minnka á kas­sana hlut­fall­slega. Þá er ekki eins skemmti­legt að dálka­still­ingar­nar hald­ist óbreyt­tar. Þessi staða kemur upp þegar er verið að minnka auglýsingu úr heil­síðu í fjögurra dálka svo eit­thvert klassískt dæmi sé tekið. Eða að skyn­di­lega hefur verið breytt um pap­pírsstærð í ársskýrslu og þarf að minnka allt um hál­fan punkt.

Í InDe­sign er gert ráð fyrir þessu og svarið er að í stað þess að halda eingöngu í Shift hnap­pinn þegar boxið er minnkað er bætt við Slaufu hnapp­num svo allt minnki í réttu hlut­falli. Málið leyst.

Ég vona bara að menn geri flók­nar ársskýrslur og þess hát­tar í InDe­sign og haldi sig við ein­fal­dari hluti í Illus­tra­tor því þetta er ekki svona ein­falt þar. Þó má alltaf gera ráð fyrir að ein­hver leiki sér með máls­greinas­till­ingar í auglýsingum. Ég geri það í það minnsta og hef skri­fað um það hér.

Fle­stir minnka eflaust bara textaboxið í Illus­tra­tor, velja tex­tann og skjaka svo við dálka­stilin­gunum þar til þetta lítur svona nokkurn veg­inn eins og það gerði áður. En fyrir þá sem vilja vera aðeins nákvæ­mari er hérna sú eina leið sem ég hef fundið til þess að gera þetta:

  • Í stað þess að minnka eða stækka textaboxið með því að færa hann sun­dur og saman með aðs­toð hornkas­sanna, er Scale tólið notað. Þetta er til þess að maður geti fengið stærðar­breytin­guna í nákvæmri prósentu. Hana má sjá í Info palet­tunni. Win­dow > Info (F8). Gefum okkur að við höfum minnkað textaboxið um 72%.
  • Næst er farið í Tabs stikuna Shift + Sla­ufa + T. Veljum dálka­hakið og tala kviknar í reit í stikunni. Segjum að það sé núna 10 mm.
  • Nú skri­fum við fyrir aftan 10 mm, annað hvort: *.72 eða *72%. Þetta lítur þá svona út: 10 mm*72%.
  • Return eða Enter.

Í Para­graph palet­tunni (Shift + Val + T) er kannski inndrát­tur still­tur á 28,35 pt, sem er sama og 10 mm. Þar getum við farið inn líka og gert nákvæm­lega það sama: 28,35 pt*72%. Sláum svo á Enter og inndrát­turinn breytist í sama hlut­falli og minnkunin á textaboxinu.

Þessi eigin­leiki í for­ri­tum finnst víða, ekki bara í Adobe CS pakkanum og er upplagt að not­færa sér þetta við fleiri tæk­ifæri. Sem dæmi, eins og sést í Para­graph palet­tunni er hún hjá fles­tum í punk­tum. Með því að velja stil­lire­itinn og skrifa 10 mm fáum við 10 mm inndrátt en talan breytist sam­stundis í 28,35 pt. Þes­sir reitir taka meðal annars margföl­dun eins og hér er sýnt að undan, en ein­nig deilingu, blön­dun á mælieiningum og ýmis­legt annað.

Share