Argentína 2006 : Síðasta kvöldmáltíðin
Við spásseruðum um Palermo eftir morgunmatinn. Veðrið hefur leikið við okkur allan tíman. 20 — 25 stiga hiti og glampandi sól alla daga. Það ringdi víst í BA á meðan við vorum í Mendoza en við höfum aðeins séð örlitla skýhnoðra á himni.
Palermo er frábært hverfi vægast sagt. Allt morandi í kaffihúsum, verslunum og fólki. Við rákumst meðal annars inn í verslun sem seldi sófasett og innanstokksmuni. Verslunin heitir Prét. Við keyptum það tvo vasa úr járni, alla tærða og flotta á litinn. Þetta væri varla í frásögur færandi ef þeir væru ekki unnir úr notuðum púströrum.
Klukkan eitt kom Alejandro og náði í mig og skruppum við í hádegismat á perúskum stað. Það teygðist reyndar aðeins úr þessu og við stóðum ekki upp fyrr en um hálf fjögurleytið. Við munum að öllum líkindum hittast aftur í San Francisco eftir áramótin ásamt nokkrum öðrum leturfíklum.

Þá er komið að síðustu kvöldmáltíðinni í Argentínu. Í þetta skiptið fórum við á veitingastað í hverfinu, Bistro, sem er með mat með ítölskum áhrifum. Maturinn var alveg í góðu lagi og vínin fín. Þjónustan einnig. Hver getur fengið nóg af því? Í það minnsta stoppar verðið mann ekki.

