Argentína 2006 : Nóg af steikum í bili
Við eyddum deginum hér og þar um borgina. Nóg er að skoða. Um kvöldið stöldruðum við á barnum á hótelinu og hituðum okkur upp með drykk. Þeir eru með ansi góðan rauðan bjór eða öl, rautt að lit. Kallast hann OtroMundo sem ég er nokkuð viss um að þýði annar heimur.
Spænskan er sem sagt að skjóta rótum. Enda veitir ekki af. Það er helst á hótelum og í ferðaþjónustunni sem innfæddir eru sleipir í ensku. Samt ekki leigubílsstjórarnir þótt þeir eigi nú að teljast til ferðaþjónustunnar. En það er ekki hægt að áfellast fólk fyrir að kunna ekki ensku – ekki kunnum við spænsku. Það er þó merkilegt hvað þetta gengur vel. Gott er samt að hafa alltaf með kort af borginni sem hægt er að vísa í ef samskiptaörðugleikarnir verða miklir.
Við tókum svo leigubíl á Yuki sem er japanskur veitingastaður. Frábær matur og eins og japönskum veitingastað sæmir vissi maður ekki hvað helmingurinn af því sem maður lét ofan í sig var. Ég borðaði meira að segja stórt grænt laufblað sem kannski var bara af stofuplöntu til skrauts. Ekki gott að segja. Kokkurinn er kannski enn að hlægja að þessu.


