Argentína 2006 : Mendoza í vestri
Við skráðum okkur út af Hotel Madero og héldum út á flugvöll. Förinni heitið til Mendoza sem er aðal vínræktarhérað Argentínu. Aftur lentum við í töf með flugið og enn og aftur grunar mig að það sé eingöngu til þess að þjappa betur í næstu vél. Það er svoldið langt gengið þegar áætlunarflugfélög eru farin að herma þetta eftir lággjaldaflugfélögunum.
En við komumst á endanum á leiðarenda og tókum leigubíl á hótelið okkar, Park Hyatt Mendoza. Þetta er dýrasta hótelið á staðnum og jafnframt það dýrasta sem við nýtum okkur. Samt kostar ekki nema fimmtán þúsund krónur nóttin á genginu sem er í dag. Hvaða kytru fengi maður til dæmis í Evrópu fyrir þann pening?
En flott er það. Það er ekki eins nýtískulegt og Hotel Madero, klassískara og með allt til alls. Herbergin ágætlega stór með þægilegum rúmum. Baðherbergin eru líklega tiltölulega nýuppgerð og hefur það heppnast prýðilega. Sloppar fylgja með herbergjunum og ýmislegt annað smálegt.
Á hótelinu er einn af betri veitingastöðum borgarinnar, BistroM, margverðlaunaður og með matseðil sem fær mann enn til að slefa í laumi. Ég lagðist veikur fyrstu nóttina og svaf allan næsta dag og missti því af málsverðinum. Ég naut hins vegar góðs af ýmsu öðru sem var í boði. Til dæmis var sérstakur seðill fyrir þá sem vildu borða úti á svölunum fyrir framan hótelið og vínlistinn var glæsilegur, fullur af vínum héraðsins.
Ég lá sem sagt veikur þann 12. og segir ekki meira af þeim degi.

