Argen­tína 2006 : Meira labb og heimsókn

Við skoðuðum meira af borginni í dag. Fórum meðal annars á Cafe Tor­toni, sem er elsta kaf­fi­hús bor­garin­nar. Það hefur verið afdrep mar­gra þekk­tustu lis­ta­manna Argen­tínu­manna í áratugum saman. Flott kaf­fi­hús þótt ég myndi nú ekki sjál­fur venja komur mínar sérstak­lega á það.

Ég skrapp svo seinni partinn í heim­sókn til leturhön­nuðarins Ale­jan­dro Paul, sem ég hef minnst á hérna á síðunum áður. Við höfum þekkst í nokkur ár á net­inu og því ekki annað hægt en að hit­tast finnst ég var kominn alla leið. Það var virk­i­lega gaman að hitta hann svona í eigin per­sónu. Eins og vanalega þegar manni líkar vel við ein­hvern á net­inu gildir það sama utan netsins. Við ræd­dum fram og til baka um okkar uppáhalds málefni, letur. Ég fékk líka að skoða það sem hann er að vinna að. Að lokum ákváðum við að hit­tast aftur þegar ég kæmi frá Mendoza.

Áður en við hél­dum út á lífið um kvöldið komum við á einu flot­tasta hóteli Buenos Aires, Faena + Uni­verse. Það er heilt ævin­týri að koma inn á þen­nan stað. Verðið fyrir nót­tina byr­jar í um 300 dol­lu­rum. En það er ekkert mál að fá að fara á barinn þarna sem kallaður er Library Lounge. Ekki var leyft að taka myn­dir þarna nema fólk væri inn á myn­duum og er því best að vísa bara á vef­s­lóðina. Eina nothæfa myn­din sem ég tók sýnir betri helmin­gana, Ebbu og Lindu virða fyrir sér Mar­garí­turnar úti við sund­lau­gar­garðinn á Faena.

ARG12

Eftir þetta smell­tum við okkur á steikarstað sem ég man ekki í svip­inn hvað heitir, í Puerto Madero, ekki langt frá hótelinu. Puerto Madero er þetta gamla haf­narsvæði þar sem hótelið okkar er og tengist miðbænum með fjórum brúm. Myn­din sýnir eina brúnna. Ég var ekki eins hrifinn af þes­sum steikarstað eins og las Lilas en þó var þetta alveg ágætt. Það er ekki svo auðvelt að toppa las Lilas.

ARG11

Share