Argen­tína 2006 : Fleyt­ing milli landa

Sun­nuda­gar í borgum eru oft svolítið van­dræðale­gir. Best að nota þá til þess að skoða söfn eða gera sér ferð á ein­hvern stað. Við notuðum daginn þan­nig og skell­tum okkur yfir til Uruguay í dag.

Siglt er frá höfninni í Buenos Aires og tekur það um einn tíma. Við vorum svo hep­pin að Uruguay­búi nokkur gaf sig á tal við okkur þegar hann heyrði okkar fra­mandi mál. Hann fræddi okkur um sögu lands og þjóðar og benti okkur á margt sem vert væri að hafa í huga og drekka í bænum sem við vorum að fara til, Colonia.

ARG06

Þessi bær er lágreis­tur og var byg­gður upphaflega af Portúgölum. Sjá má lei­far af því tíma­bili í steinhlöðnum húsum. Þá komu Spán­ver­jar og byg­gðu sín hús múrhúðuð, stun­dum ofan á þau portúgöl­sku. Eftir koma svo ýmis stíl­brigði eftir því hvers lenskir inn­fly­t­jen­dur voru. Þessi fjöl­breytileiki er ein­nig mjög sýni­le­gur í ýmsum hver­fum í Buenos Aires og gaman að virða þetta fyrir sér.

ARG08

Úrúvæ­jar gera vín sín gjar­nan úr þrúgu sem heitir Tan­nat, mjög tan­nín­rík vín og við lágum ekki á liði okkar að prófa þessi nánast svörtu vín. Annað sem þeir drekka af mik­lum móð ásamt Argen­tínumön­num, Paragvæjum og öðrum nágrön­num er Yerba Mate. Þetta er jur­tate sem drukkið er ýmist úr stórum holuðum fræjum, trébol­lum eða þá úr leður­bol­lum sem kallaðir eru Mate. Drykkurinn er sogaður upp með pípu sem er með sigti að neðan. Í Colo­nia ganga menn með bol­lann hvert sem þeir fara og unglin­gar jafnt sem ful­lorðnir rogast að auki með hitabrúsa undir hendinni.

ARG09

Við borðuðum á tveimur veitin­gahú­sum í bænum milli þess sem við skoðuðum svæðið og mannlí­fið í glam­pandi sól og tan­natvínin pró­fuð. Við sigldum svo til baka um átta­leytið og komum útkeyrð á hótelið.

Share