Argen­tína 2006 : Club Tapiz

Rétt fyrir hádegi skráðum við okkur út af Park Hyatt og tókum leigubíl upp í sveit með það fyrir augum að gista eina nótt á vín­bú­garði. Við höfðum valið okkur Club Tapiz sem er gis­tis­taður með sjö her­bergjum í aflagðri vín­fab­rikku svona þrjátíu mínútna leigubílaak­stur frá miðborg Mendoza.

ARG17

ARG23
Við höfðum séð myn­dirnar á net­inu en þetta var fra­mar öllum væntingum. Her­ber­gin eru þokkalega stór og sér­lega hlý­leg og allur aðbú­naður annar eins og á besta hóteli. Sund­laug í garðinum og gufubað og slöku­naraðs­taða og ein­nig hægt að panta sér nudd fyrir lítið fé. Hægt er að ramba um allan staðinn og virða fyrir sér risa víná­mur sem lagðar hafa verið af.

ARG25

Tapiz er stór vín­fram­leiðandi en fram­leiðs­lan hefur verið flutt í nútí­male­gra hús­næði. Upplagt var því að breyta gömlu verksmiðjunni í gis­tist­tað. Min­nir þetta dálítið á svokallaðan agri­t­ur­ismo sem mikill upp­gan­gur hefur verið í á Ítalíu þar sem bænd­abýlum og óðals­setrum er breytt í gistisaðstöðu.

ARG18

Klukkan átta um kvöldið var svo boðið upp á vín í sameigin­le­gri stofu áður en gestir héldu annað í leit að kvöld­mat eða borðuðu á veitin­gahúsi staðarins sem ekki er af verri endanum. Á einni vef­síðu er þetta veitin­gahús flokkað með þeim bestu á Men­doza svæðinu.

Því miður leyfði tíminn ekki að við dvel­dum lengur en einn sólarhring þarna – þrír dagar hefði verið betra. Staðurinn væri kjörinn sem miðpunk­tur fer­ðalaga í allar áttir um svæðið.

ARG22

Share