Argen­tína 2006 : Aftur til Buenos Aires

Um mið­jan dag hél­dum við út á flugvöllinn í Men­doza og flugum til Buenos Aires. Hótelið sem við verðum á núna heitir Five. Þetta er virk­i­lega skemmti­legt og nýlegt hótel en það mætti samt alveg mála veggi og skrúbba flísafúgur. Her­ber­gin aðeins minni en við vön­dumst á fyrri hótelunum. En þetta er um það bil það eina sem ég gæti fundið að.

Á móti kemur að hótelið er í einum skemmti­le­gasta hluta Buenos Aires, Palermo. Palermo er lágreist hverfi og min­nir pínulítið á Green­wich Vil­lage í New York. Í Palermo hafa hön­nuðir af öllum gerðum komið sér fyrir og opnað verk­stæði og búðir í löngum bunum. Kaf­fi­hús og veitin­gas­taðir elta svo mannlí­fið og úr verður skemmti­leg blanda. Mar­gir af bestu veitin­gastöðunum eru þarna og ætlunin er að kíkja á nokkra þeirra.

Um kvöldið fórum við á víet­nam­skan stað í hverfinu sem heitir Green Bambo. Gæd­dum okkur á spare-ribs, öndum og fleiru. Stórkostle­gur matur.

ARG24

Share