AI : ID : Tugabrot í tommum

AItugabrot

Varla er hægt að ætlast til þess að maður kunni skil á tugabro­tum í tom­mum, hvað þá að maður geti snarað þeim í mil­lime­tra rétt si svona. Þetta er þó mál sem maður gæti þurft að leysa t.d. ef maður þarf að gera auglýsingu í amerískt tímarit eða eit­th­vað því um líkt.

Málið er hel­dur ekki svo flókið – ef maður veit hvað gera þarf. Þetta snýst fyrst og fremst um að breyta tugabrot­inu, t.d. 7/16 í almennt brot, sem er 0,4375. Ef talan er til dæmis 8 7/16 tökum við tugabrotið, og deilum 16 í 7 til þess að fá þetta rétt og svo skip­tum við ein­faldlega 8 7/16 yfir í 8,4375.

Til eru vef­síður sem eru með svona umreiknivélar sem þægi­legt er að nota.

Þegar kemur svo að því að setja þes­sar tom­mutölur inn í málset­ningar­re­itina í Illus­tra­tor eða InDe­sign er óþarfi að breyta kvarðanum í for­rit­inu. Nóg er að skrifa in (8,4375 in) á eftir tölunni og þá fer þetta rétt inn en breytist jafn­framt í mil­lime­tra sem eru okkur aðeins kunnuglegri.

Share