Flýtiskipanir við skriftir
Þótt mýs (myndin er reyndar af rottunni úr Dilbert) séu alveg ágætis skepnur til síns brúks, er ágætt að hafa í huga að oft getur verið mun hentugra að nota bara hnappaborð tölvunnar til þess að gera einfaldar aðgerðir. Þetta á ekki síst við meðhöndlun á texta. Færa textabendilinn, hoppa milli orða, velja orð. Það er varla ómaksins vert að teygja sig í músina til þess að gera þessar aðgerðir. En til þess þarf náttúrulega að kunna nokkrar hnappasamsetningar sem hér fara á eftir.
Ég mæli með því að þú prófir smá æfingu: Afritaðu þennan texta og settu hann inn í eitthvert forrit sem tekur texta. Það getur verið TextEdit, Word eða Mail. Lest svo textann línu fyrir línu og prófar hverja einustu aðgerð sem í honum stendur. Athugaðu að þessar aðgerðir virka fínt í Finder líka við að breyta nöfnum á skjölum. Einnig þarf að athuga að þessar sömu aðgerðir nota aðrar skipanir í Adobe forritunum, þannig að þú skalt ekki nota þetta þar strax.
Til skýringar: Val er sama og Option eða Alt. Slaufa er sama og Command eða epli. Vinstri, hægri, upp og niður á við pílurnar. Næsta þýðir hér bæði næsta og núverandi.
Byrjum á því að æfa hreyfingar textabendilsins:
- Option + vinstri píla: Framan við næsta orð. Bendillinn stekkur fremst í orðið sem hann var í og svo fremst í næsta og svo framvegis. Bættu Shift við og orðið eða orðin veljast.
- Option + hægri píla: Að enda næsta orðs. Ýttu svo aftur á píluna og bendillinn hoppar um orð. Bættu Shift við og orðin veljast.
- Option + píla upp: Framan við næstu málsgrein. Fljótleg leið til þess að komast fremst í málsgrein og eins fremst í nafn þegar er verið að skíra skjal í Save glugganum. Bættu Shift við og allt nafnið velst í einu stökki.
- Option + píla niður: Að enda málsgreinar.
- Option + Bakkhnappurinn (backspace): Eyðir orðinu sem stendur á undan.
- Option + Del (undir Help hnappnum): Eyðir orðinu sem kemur á eftir bendlinum.
- Slaufa + vinstri píla: Bendillinn hleypur fremst í línu.
- Slaufa + hægri píla: Bendillinn stekkur aftast að línuenda.
- Slaufa + upp píla: Bendillinn fer fremst að upphafi textans eða skjalsins.
- Slaufa + píla niður: Bendill að enda skjalsins.
Shift hnappurinn til viðbótar við allar þessar skipanir velur textann eins og við mátti búast. Þegar maður kemst upp á lag með þetta verða þetta ómissandi þægindi. Svo er bara að nota gráu sellurnar til þess að finna út aðgerðir sem henta manni sérstaklega vel og leika á happana eins og á hljóðfæri. Sem dæmi: Shift + Slaufa + hægri píla notuð til þess að velja texta að enda línu. Sleppa svo slaufunni og gera Shift + vinstri píla til þess að afvelja einn staf til baka.
Eins og ég minntist á hér á undan virkar sumar af þessum skipunum ekki svona í Adobe forritunum. Þegar þið eruð búin að æfa þetta í textaforritum og í Finder gæti verið sniðugt að prófa að bera saman þessar aðgerðir t.d. í InDesign. Það er undra auðvelt að halda þessu aðgreindu en ég ætla ekki að gera þetta of ruglingslegt með því að skrifa það allt upp hér.

