Litablöndun
Það hafa verið skrifaðar allnokkrar bækur sem fást við það verkefni að taka saman litablöndur sem fara vel saman. Ein af mörgum er bókin eða öllu heldur bækurnar Designers Guide to Color sem komin er út í nýrri útgáfu (mín er frá 1984). Frábærar bækur til síns brúks og margar svipaðar eru til. Litablöndurnar gefnar upp í prósentum af CMYK til hægðarauka.
Nýlegum og gömlum bókum um þetta efni er hægt að kynnast á Amazon.com með því að slá inn orðinu Color eða Colour (sitt hvor niðurstaða).
Á tölvunum hefur einnig verið gerð atlaga að þessum málaflokki. Er þar skemmst að minnast forrits sem oft fylgir á nýjum mökkum og heitir Art Directors Toolkit. Frábært og einstakt forrit sem flýtir fyrir manni við alls kyns hluti sem verða á vegi manns við hönnun, ekki bara í litavali og litablöndum. Annað forrit og sérhæfðara frá Code-line er Color Consultant Pro. Í CCP er hægt að leika sér með liti fram og aftur í RGB og CMYK. Því miður vantar Pantone stuðning í þetta forrit sem hins vegar er í Art Director Toolkit. Á móti kemur að í CCP er sýnt ansi vel hvernig litir vinna saman í litakerfum og hægt er að búa sér til litapalettur og skoða liti í innbyrðis samhengi.
Það nýjasta sem ég hef séð í þessu efni og það sem mér finnst eiginlega trompa allt fyrrnefnt er vefur sem heitir colorblender.com Þessi vefsíða er undra hraðvirk og skemmtilega uppbyggð þótt efnið sé mjög sérhæft. Hægt er að blanda liti fram og aftur og fá tillögur um liti sem fara vel saman. Verulega gaman að grauta í óendanlegum möguleikum. Ekki er heldur amalegt heldur að geta fengið tillögu um hvaða Pantone litur kemst næst þeim litum sem maður hefur valið.
Ef maður er alveg hugmyndalaus er hægt að skoða risasafn af tilbúnum blöndum og byrja að vinna út frá þeim eða hreinlega að smella á „Load a random blend“ ef tímaskorturinn/letin er alveg að fara með mann.

