Leyn­dard­ó­mar InDesign

Indesignsecrets

Miðað við aðsókn að námskeiðum á InDe­sign virðist verule­gur áhugi vera á þessu ágæta umbrots­for­riti. Mar­gir eru þó sem engin námskeið hafa sótt og leita sér þekkingar úr bókum eða á netinu.

Sumum finnst best að læra bara lítið í einu – finnst það fes­tast betur í kollinum. Ég rakst nýlega á síðu sem heitir indesignsecrets.com. Ekki er nóg með að það sé hau­gur af fróðleik og spjalli á síðunni, hel­dur er þar boðið upp á ókeypis viðbót (plug-in) fyrir InDe­sign. Hún virkar þan­nig að um leið og for­ri­tið er ræst opnast lítill gluggi sem hefur að geyma fróðleik um for­ri­tið, ein­hver­jar brel­lur og verklag.

Skamm­turinn ætti að henta þeim sem nota vin­nuálag sem afsökun fyrir að kynna sér ekki eigin­leika for­ritsins. Það er nefni­lega ekki svo slæmt að læra eit­th­vað aðeins meira en maður þarf nauðsyn­lega að nota í hvert og eitt skipti. Saf­nast þegar saman kemur.

Viðbótin er á slóðinni: http://indesignsecrets.com/plug-ins-and-scripts/ Ekki sakar að geta þess að efnið í viðbótinni er samið af David Blat­ner, en mar­gir kan­nast kannski við nafnið af ýmsum tölvubókum sem hann hefur verið viðriðinn og viðbótin er smíðuð af Aex­tra sem ég hef dálítið verið að hampa vegna orðskip­tiviðbó­tarin­nar InDi­hyph. Ein­nig má nál­gast viðbótina hjá þeim en ekki sleppa því að skoða vefinn hjá indesignsectets.com

Þar er margt að finna og meðal annars er boðið upp á Pod­cast sem hlusta má í iTunes

Share