99 – 66. Íslenskar gæsalappir.

Nítíu og níu – sextíu og sex. Þetta er ekki PIN númer, heldur tala sem hjálpar manni að muna hvernig íslenskar gæsalappir eru settar í kringum orð.
Maður sér nánast á hverjum degi í auglýsingum og bæklingum notað shift + 2, til þess að búa til gæsalappir eins og tíðkuðust á ritvélum hér á árum áður. Táknið sem kemur með þessari skipun þýðir tomma og á alls ekki við í íslensku.
Fyrir þá sem ekki hafa tileinkað sér að nota réttar íslenskar gæsalappir eru þær sóttar þannig á makkahnappaborðinu:
- Að framan/niðri: Option + ð (99)
- Að aftan/uppi: Option + Shift + ð (66)

