AI : Save a Copy… fingraleikfimi

AI_Fingraleikfimi

Hér er smá viðbót við pis­tilinn um Save a Copy… sem flýtir ennþá meira fyrir manni.

Málið er að við nafn skjalsins bætist við orðið copy sem mér er afar illa við. Mér finnst þetta alger óþarfi þar sem þessi vinnslu­aðferð sem ég lýsti þýðir að .eps skjalið er alltaf afrit. Það kostar alltaf ein­hver­jar sekún­dur að losa sig við þetta orð. Sekún­durnar saf­nast upp og best að hafa þær sem fæstar.

Þess vegna er ágætt að bæta við þessu smá ferli sem lág­markar tímann sem fer í þetta:

Þegar ég er búinn að vinna í Illus­tra­tor skjal­inu, (.ai) og komið er að því að ég þarf að fara að senda frá mér pdf skjal byrja ég á því að búa til .eps skrá eins og lýst er í greininni.

Það sem flýtir fyrir heil ósköp er þetta ferli:

  • Save a Copy… Held niðri option (Alt) + slaufu + s. Þá kemur upp gluggi með nafni skjalsins valið. .ai er fyrir aftan – ekki valið.
  • Smelli á hægri píluh­nap­pinn á hnap­paborðinu einu sinni. Við þetta hrekkur textabendillinn aftast í valda orðinu, nafni skjalsins á eftir copy og undan .ai.
  • Slæ á bakkhnap­pinn (Back­space) fimm sin­num (ég drip­pla reyn­dar vísif­in­gri og löngutöng upp og niður við þetta og tel í huganum upp að fimm :-) ). Þur­rka þan­nig út orðið copy og bilið á undan því.

Nú get ég farið á For­mat: hnap­pinn neðst og skipt úr Adobe Illus­tra­tor Doc­u­ment yfir í Illus­tra­tor EPS. Og að lokum er smellt á OK.

Ef ég slysast til þess að afvelja nafn skjalsins t.d. með því að smella á ein­hverja möppu sem ég ætla að láta það í get ég svert nafnið aftur með því að smella sex sin­num á tab hnappinn.

Þetta er lík­lega með því kún­stu­gra sem ég hef nefnt hérna. En það er ein­faldlega þan­nig að ég hef mikinn áhuga á öllu sem getur bætt verk­ferla og flýtt fyrir manni. Þetta er aðeins eitt af mörgu sem hægt er að tína til. Ég geri ráð fyrir því að þeir sem koma hér við reglulega hafi að minnsta kosti smá sne­fil af þes­sum sama áhuga og þess vegna má búast við að ég skrifi af og til um þessi og skyld mál.

Share