Lorem ipsum

Í riti sínu De finibus bono­rum et mal­o­rum, (Endalok góðs og ills), skri­faði Cicero:

Neque porro quisquam est qui dolorem ipsum quia dolor sit amet, con­secte­tur, adip­isci velit. (Lauslega þýtt: “Engum líkar sár­sauki sjálfs hans vegna, leitar hans eða óskar hans, aðeins vegna þess að hann er kvalarfullur… “).

Ef rýnt er í feitletrun­ina í tex­tanum hér að ofan sést að þarna er á fer­ðinni uppruni hins mar­gró­maða Lorem ipsum texta sem við notum gjar­nan sem upp­fyl­li­texta þegar við höfum ekki fengið tex­tann frá tex­ta­man­ninum okkar. Eða að við viljum hrein­lega ekki að viðskip­tavin­urinn fari að sökkva sér í lestur á texta þegar hann á að vera að horfa á útlit.

Lorem Ipsum tex­tar hafa verið notaðir í rúm­lega fimm aldir en vin­sældir hans jukust til mikilla muna þegar Letraset hóf fram­leiðslu á lím­fólíum með Lorem Ipsum upp á sjöunda áratugnum.

Hvernig sem á því sten­dur finnst mér ég oft þurfa að leita að tex­tanum þótt ég sé búinn að planta honum út um allt. Ég var með tex­tann um ára­bil sem Quick­eys skipun og fannst mjög þægi­legt. En maður er nú ekki að nota þetta á hverum degi svo ég gleymdi stun­dum hver skipunin var.

Hér eru nokkrir linkar þar sem tex­tinn finnst og ein­nig þar sem er hægt að fá Lorem Ipsum sérsniðið að þör­fum hvers og eins:

Lorem Ipsum með mis­löngum setningum.

Lorem Ipsum tex­tavél þar sem hægt er að sérsníða tex­tann að eigin þörfum.

Og fyrir þá sem eru á Tiger er hægt að nál­gast Lorem Ipsum wid­get sem getur búið til ýmsar útgá­fur af Lorem Ipsum.

Að auki má svo geta þess að InDe­sign er með mjög þægi­lega skipun Type>Fill with Place­holder Text sem getur sett óen­dan­legt magn af svona latínubulli inn í textabox.

Share