PS : Að ná taki á mynd
Kemur ekki af og til fyrir hjá ykkur eitthvað svona:
- Erum að vinna í mynd í Photoshop. Segjum að þetta sé 800×600 px mynd, til dæmis bakgrunnur í PowerPoint kynningu.
- Opna aðra mynd til þess að ná í efni í myndina. Gæti verið til dæmis mynd úr ársskýrslu eða svipað sem kúnninn vill fá inn í kynninguna sína.
- Myndin dregin yfir.
- Áts…! Myndin kemur allt of stór á skjáinn, oft af því að hún er í miklu hærri upplausn. Við þurfum að súmma út eða draga til hliðar til þess að ná tökum á myndinni.
Kannski kunnið þið einhverja einfalda hjáleið? Mín leið er þessi:
Fyrst: Slaufa + T (Transform). Við þetta virkjast Transform ramminn.
Svo: Slaufa + 0 (núll). Við þetta súmmast myndin út þannig að við sjáum allan Transform rammann.
Þetta er svona brella sem maður getur eiginlega ekki gleymt eftir að maður hefur notað hana einu sinni því tímasparnaðurinn og þægindin eru það mikil.

