Enn um skyn­diminni leturs, Font Cache files

Ég sagði einu sinni frá Font Fina­gler, for­riti sem er notað til þess að hreinsa tölvuna af svoköl­luðu letur skyn­diminni eða Font Cache eins og það heitir á engilsaxnesku.

Þessi skjöl sem eru oftast lei­far af fyrri leturnotkun eru oft til mikil­lar óþurf­tar og nauðsyn­legt fyrir þá sem nota mikið og fjöl­breytt úrval af letri að hreinsa þessi skjöl út af tölvunni af og til. Sérstak­lega ef ein­hver undar­leg hegðun gerir vart við sig varðandi letur.

nukeNú hefur bæst í verk­færasafnið ókeypis for­rit sem gerir nánast það sama og Font Fina­gler og heitir það Font Nuke. For­ri­tið tekur af manni ómakið við að finna þessi skjöl og eyða hand­virkt. Það er enda ekki auðh­lau­paverk að halda utan um alla þá staði sem þau ley­nast á.

Font Nuke hrein­sar meðal annars svona skjöl eftir Adobe for­ritin og Microsoft Office.

Höfun­durinn, Jake Pietrykowski hefur ákveðið að gefa hver­jum sem hafa vill for­ri­tið en hann þróaði það eftir að verið að verða gráhærður við að hreinsa skyn­dimin­nis­skjöl af tölvunum þar sem hann vin­nur. Það þarf nefni­lega að gera þetta oft á vin­nustöðum þar sem leturóðir vinna.

Share