AI : Vinnusvæði

Þegar þú ert að vinna í Illus­tra­tor –eða Pho­to­shop, eru palet­turnar út um allt? Ertu kannski að troða þeim út af glug­ganum og toga þær svo aftur inn á skjáinn til þess að geta notað þær?

Ég biðst inni­le­grar afsöku­nar ef þetta á ekki við þig, en þetta er ég stöðugt að sjá hjá mör­gum sem eru að vinna í þes­sum for­ri­tum. Líka í InDe­sign þótt þar séu hlu­tirnir aðeins meira sko­rðaðir. En ef þetta á við þig lan­gar mig aðeins til að reyna að hjálpa þér að koma þessu í lag eða í skárra horf að minnsta kosti.

Það er greini­legt að mar­gir byrja ein­faldlega með þær palet­tur sem for­ritin opna fyrst þegar þau hafa verið sett inn. Svo fara menn að leita að ein­hverri nýrri sem þarf að nota. Hún lendir ein­hvers staðar og þvælist svo fyrir þar til henni er lokað eða ýtt til hliðar.

Það eru nokkur atriði sem vert er að athuga og sem geta minnkað þessa þvælu. Ég er ekki að segja að þetta sé ful­lkomið hjá mér en það ástand sem ég lýsti hér að fra­man hefur átt við mig ein­hvern tíma áður en ég tók mig til og kom skikkan á þetta.

Ef ein­hver vill getur hann hermt alveg eftir mínu vin­nusvæði til að byrja með og betrum­bætt það síðar. Ef þetta höfðar ekki til þín skaltu samt lesa til enda því þar er nefnd aðal brel­lan í þessu öllu saman.

Skoðum fyrst hvaða palet­tur við viljum alltaf hafa opnar. Það eru auðvi­tað Charar­c­ter palet­tan og Color palet­tan. Minna getur það varla verið. Það fer svo eftir vin­nu­lagi hvers og eins eða verkefnum hverju ætti að bæta við. Best að kíkja í Win­dow og opna að sem þú vilt hafa og raða þeim svo saman eftir því sem þér finnst best og eðlile­gast. Fyrst og fremst verður þetta að byg­gja á því hvað við notum oftast og stun­dum er betra að hafa ein­hverja palet­tuna eina og sér ef hún þarf alltaf að vera opin og sjáanleg.

Ég tók tvo skot af skjánum hjá mér til þess að sýna mitt vin­nusvæði. Það er sjálf­sagt alveg von­laust að sjá hvað er hvað svo ég tel fram hvernig þetta er.

WorkspaceRegular

Í fyrsta lagi dreg ég tólabret­tið Tools aðeins niður svo það skyggi ekki á lokah­nap­pinn og þen­nan gula og græna. Smá útúrdúr.

Í öðru lagi er ég með þrjú palet­tusöfn þar sem ég hef raðað saman, því sem mér hen­tar að hafa saman, vin­stra megin á skjánum hvert ofan á öðru en aðeins hliðrað til svo ég geti alltaf nál­gast þau. Þessm bret­tum raða ég svona saman:

  • Char­ac­terPara­graphOpen Type
  • Trans­formAlignPathfinder
  • Doc­u­ment InfoAttrib­utes

Hægra megin á skjánum raða ég svo saman í þessa hópa talið að ofan:

  • Nav­i­ga­torInfo (ég hef Info nær alltaf opinn)
  • Color (Hér vil ég ekki hafa neitt annað með því Color þarf allaf að vera í forgrunni.)
  • SwatchesBrushesSym­bols
  • AppearenceGraphic Styles (Appearence er svo mik­il­vægt að það er alltaf opið)
  • StrokeGra­di­entsTrans­parency
  • Lay­ersLinks

Mör­gum finnst kannski alveg fráleitt að hafa palet­tur þarna vin­stra megin því þær virðast bara vera fyrir. Það kemur reyn­dar fyrir að ég þarf að losna við þær en þá smelli ég ein­faldlega á Tab hnap­pinn og allar palet­turnar hverfa — þar til ég smelli aftur á Tab. Shift + Tab hel­dur tólabret­tinu, Tools, hins vegar á sínum stað. Þan­nig að þetta er sko bara alls ekki svo mikið fyrir.

En ekki sku­lum við stoppa hér. Þegar við erum búin að raða þessu svona flott upp og jafn­vel búin að prófa að vinna með þetta svona smá tíma lendir maður kannski í því að maður er búinn að loka óvart ein­hverri palet­tunni eða ýta til hliðar eða hver veit hvað.

Þess vegna sku­lum við núna fara upp í Win­dow > work­space > Save work­space… Vista undir ein­hverju auðskil­jan­legu nafni. Ég nota sem dæmi Sig­u­rarm­Work­space. Gæti verið betra. Köl­lum það hér bara MittWork­space þar til annað betra finnst. Munið bara að hafa þá palettu frem­sta í hver­jum hóp sem þú notar mest áður en þú vis­tar. Til dæmis Char­ac­ter palet­tuna frekar en Para­graphs og Lay­ers frekar en Links ef það á við þig.

Pró­faðu nú að rugla palet­tunum út um allt loka sumum og svoleiðis. Farðu svo í Win­dow > work­space > MittWork­space. Þvílíkur galdur!

Svona work­space eða vin­nusvæði er hægt að vista í InDe­sign og Pho­to­shop líka. Og ekki nóg með það, það má hafa fleiri en eitt vin­nusvæði sem maður getur kallað fram. Sem dæmi lendi ég oft í að vinna bak­grunna fyrir Pow­er­point fyrir nokkra viðskip­tavini og þá nota ég sérstaka upp­still­ingu á palet­tunum sem vin­nusvæði bæði í Illus­tra­tor og Pho­to­shop. T.d. hef ég Color palet­tuna stillta á RGB liti svo nokkuð sé nefnt.

Ein­nig þegar ég er að teikna letur eða annað þar sem ég þarf að nota Lay­ers mjög mikið í Illus­tra­tor hef ég þá palettu til hliðar svo hún geti verið mjög síð. Að skipta á milli gerólíkra vin­nusvæða er örsnögg aðgerð og vin­nus­par­naðurinn feykilegur.

Share