AI : Kommur og punktar í innsláttargluggum
Flestir sem eru að nota Illustrator kannast við þann kvilla að þegar slegin er komma í innsláttarglugga, til dæmis þegar er verið að málsetja kassa eða letur, breytist komman í punkt og villugluggi birtist sem segir: Invalid numeric value.
Leiðin fram hjá þessu er að styðja á hophnappinn, Shift á sama tíma og þá ritast þetta rétt. Frekar þreytandi.
Á apple.is umræðukorkinum er hvað eftir annað verið að spyrja um svipað vandamál í sem er í Excel. Pétur Rasmussen hefur bent þar á tvær leiðir til þess að laga þessa dellu í Excel. Glæsilegt!. Svo vill til að eftir að þetta hefur verið lagað fyrir Excel lagast fyrrnefnt kommuvandamál í Illustrator líka. Ekki amalegur bónus það.
Leiðirnar eru tvær við að breyta þessu. Eini ókosturinn við þetta er að í stöku forritum verða mánaða og vikudaganöfn á dönsku en það telst varla stórvægilegt. Lýsingin sem hér fer á eftir miðast við Excel og texti Péturs er lítillega umskrifaður.
Leið A:
Farðu í System Preferences
Velur International
Ferð í Formats
Hakar við Show all regions
Velur Region: Danska, Danmörk
Þá er að prófa hvort þetta hafi ekki virkað. Excel er opnað og ætti núna að sýna punkta og kommur rétt. Einfaldast að prófa það með því að slá inn 123456,789 og ýta svo á Enter.
Smellt er svo í reitinn og valið Slaufa-1, Number og svo valið: Decimal places = 3. Hakað við: Use 1000 separator (.)
Ef þetta birtist rétt er Excel lokað aftur, farið aftur í System Preferences og allt stillt til baka eins og maður vill hafa það.
Leið B:
Farðu í System Preferences
Velur International
Ferð í Language
Smellir á Edit List og bætir við Dansk og hefur hana eftst á listanum
Ferð í Formats
Velur Region: Danska, Danmörk
Prófun er eins í Leið A:
Excel er opnað og ætti núna að sýna punkta og kommur rétt. Einfaldast að prófa það með því að slá inn 123456,789 og ýta svo á Enter.
Smellt er svo í reitinn og valið Slaufa-1, Number og valið: Decimal places = 3. Hakað við: Use 1000 separator (.)
Ef þetta birtist rétt er Excel lokað aftur, farið aftur í System Preferences og allt stillt til baka.
Nú ættu innsláttargluggar í Illustrator að vera komnir í lag líka.

