AI : ID : Lýsa og dekkja liti

Hér er eitt sem bók­staflega allir verða að kunna.

ColourSlideEf maður er að vinna með sér­lit, Spot Colour, í Illus­tra­tor eða InDe­sign er ein­falt að draga til sleðann á litasp­jald­inu til þess að fá ljósara afbrigði af lit­num í prósen­tum. Sama á líka við um í fjór­lit; hægt að draga hvern lit CMYK til til þess að breyta.

Snilldin er hins vegar sú að það er hægt að lýsa og dekkja liti á CMYK og RGB litaspjöl­dunum í hlut­falli af lit­num með því að draga til einn af sleðunum en halda Shift niðri á sama tíma.

Við þetta færast hinir sleðarnir með í réttu hlut­falli af upprunalega litnum.

Share