AI : AdobeFnt
Ef þú prófar setja adobefnt sem leitarorð á tölvunni þinni eru allar líkur á því að þú finnir alveg frá nokkrum upp í nokkur hundruð slík skjöl. Eitt svona skjal myndast á tölvunni fyrir hvern Adobe font sem opnaður er. Til viðbótar við AdobeFnt bætist við númer og svo ending þannig að þú sérð runu af nöfnum sem líta svona út:
AdobeFnt00.lst
AdobeFnt07.lst
og
AdobeFnt.db
Það hefur aldrei fengist almennileg skýring frá Adobe á því af hverju er þörf á að þessi skjöl myndist. Hins vegar viðurkennir Adobe að tilvist þessara skjala sé óþörf og í mörgum tilfellum til trafala. Sem dæmi veldur þetta hægagangi þegar skipt er úr einhverju forriti yfir í Illustrator. Þá kemur gjarnan sundboltinn frægi og snýst og snýst. Því meir sem hann snýst, því fleiri AdobeFnt skjöl ertu með á tölvunni.
Það er því lang best að leita þessi skjöl uppi og henda öllum þeim sem enda á .lst beint í ruslið — en ekki þeim sem enda á .db
Sjá einnig meira um þetta í grein um: Smart Folders

