PS : Breyta mörgum textalögum í einu
Bara ef þið lendið í því eftir að hafa gert mörg textalög í Photoshop og þurfið svo að breyta þeim öllum í aðra leturgerð, sameiginlegan lit, gleikka allt letrið eða eitthvað af því tagi:
Með því að velja saman þau textalög sem þurfa einhverja sameiginlega breytingu, á þann hátt að smella á eitt lag af öðru, haldandi niðri skipanahnappnum, það er að segja: smell + Command, er hægt að framkvæma þessar breytingar fyrir öll valin lög uppi í verkfæraslánni.
Það er eflaust hægt að orða þetta miklu betur en það verður þá bara áskorun dagsins að komast í gegnum þetta. Þetta er nefnilega eitt af því sem getur sparað manni þó nokkuð leiðinlegar mínútur t.d. í vinnslu á PowerPoint bakgrunnum eða skissu af vefumhverfi.

